Þegar skilnað ber að garði þurfa foreldrar að ákveða hjá hvor foreldrinu barn skal eiga lögheimili hjá. Börn geta ekki haft tvö lögheimili en þó voru gerðar lagabreytingar árið 2021 sem leiddu til þess að barn getur haft skipta búsetu hjá báðum foreldrum sínum. Í því felst að barn á lögheimili hjá öðru foreldrinu en búsetuheimili hjá hinu foreldrinu. Í slíkum tilvikum fellur meðlagsskylda almennt niður og taka foreldrar í sameiningu allar ákvarðanir er varða barn, án tillits til lögheimilis og bera sameiginlega ábyrgð á framfærslu þess. Í þessum tilvikum eru barnabætur greiddar til beggja foreldra. Forsenda þess að slíkt fyrirkomulag gangi upp er að foreldrarnir séu færir til að eiga í samvinnu um barnið, með hagsmuni þess að leiðarljósi.
Þegar ekki hefur verið samið um skipta búsetu á barn lögheimili hjá öðru foreldrinu en nýtur umgengni við hitt foreldrið. Umgengni við foreldri er réttur barnsins. Lögheimilisforeldri ber skylda til að stuðla að umgengni barns við hitt foreldrið.
Það foreldri sem barn á lögheimili hjá á tilkall til meðlags til framfærslu barnsins úr hendi umgengnisforeldrisins og hefur heimild til að taka afgerandi ákvarðanir um daglegt líf barnsins, svo sem hvar barnið sækir leik- eða grunnskóla. Foreldrum ber þó ætíð að leitast við að hafa samráð um málefni barnsins.
Ef foreldrum greinir á um þetta efni og tekst ekki að leysa úr ágreiningnum við meðferð máls hjá sýslumanni þarf að bera ágreininginn undir dómstóla að lokinni sáttarmeðferð hjá sýslumanni.
Hafðu samband ef þú vilt ráðgjöf eða skoðaðu vef sýslumanns fyrir frekari upplýsingar.

