
Fyrirlestrar Elísabetar Pétursdóttur, lögmanns hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar, hafa mælst vel fyrir. Elísabet hefur haldið fjölda fyrirlestra fyrir starfsfólk opinberrar stjórnsýslu, menntastofnana o.fl.
Hún hefur meðal annars fjallað um erfðamál, stjórnsýslurétt fyrir stjórnendur ríkis og sveitarfélaga, sem og réttindi og skyldur aðila skólasamfélagsins fyrir starfsfólk leik-, grunn- og framhaldsskóla.
Elísabet tekur að sér bæði staka fyrirlestra og stærri fræðsluerindi. Hægt er að laga efnið að þörfum viðkomandi stofnunar eða hóps.
Bókun fyrirlestra og frekari upplýsingar um fyrirlestra má fá með því að senda tölvupóst á elisabet@loghaf.is.
Lögfræðiþjónusta Hafnarfjarðar
📍 Dalshraun 5, Hafnarfjörður
📞 565 4550
📧 loghaf@loghaf.is
