Lögmaður í þína þágu
Lögfræðiþjónusta Hafnarfjarðar er lögmannsstofa sem leggur áherslu á skjóta, vandaða og persónulega þjónustu. Markmið okkar er að veita viðskiptavinum skýra leiðsögn og trausta ráðgjöf á öllum stigum máls.
Á stofunni er boðið upp á alhliða lögfræðiþjónustu, með sérstaka áherslu á mál á sviði fjölskylduréttar, sifjaréttar og erfðaréttar. Jafnframt sinnum við fjölbreyttum verkefnum á sviði stjórnsýsluréttar og vinnuréttar.
Ef þú þarft á aðstoð lögmanns að halda, hvort sem er vegna ráðgjafar eða reksturs máls, erum við reiðubúin að aðstoða þig af fagmennsku og trúnaði.
Þurfir þú aðstoð lögmanns að halda erum við til staðar fyrir þig.
Starfsvið okkar
Lögfræðiþjónusta Hafnarfjarðar veitir þjónustu fjölbreyttum réttarsviðum. Meðal starfssviða okkar eru:
- Erfðamál – Aðstoð við gerð erfðaskrár, skipti dánarbús, lausn ágreiningsmála milli erfingja, fyrirframgreiðslu arfs o.fl..
- Fjölskylduréttur – Mál er varða forsjá barna, lögheimili þeirra og umgengni við það foreldri sem það býr ekki hjá, sem og önnur mál á sviði fjölskylduréttar.
- Faðernis- og véfengingarmál er varða faðerni.
- Samningar og skjöl – Gerð og yfirferð skjala, svo sem kaupsamninga, umboða og erfðaskráa.
- Stjórnsýslumál – Samskipti við opinbera aðila og aðstoð við kærur og ráðgjöf vegna stjórnsýsluákvarðanana.
- Málsvörn og hagsmunagæsla – Fyrir dómstólum, hjá lögreglu og stjórnvöldum.
- Verjendastörf og réttargæsla – Á öllum stigum máls.
- Vinnuréttur – Ráðgjöf til launþega og atvinnurekenda, þar á meðal við starfslok, ráðningarsamninga og ágreining.
Lögmaður í Hafnarfirði – hvar finnur þú okkur?
📍 Dalshraun 5, Hafnarfjörður
📞 565 4550
📧 loghaf@loghaf.is
Fjarfundir
Ef þú átt erfitt með að komast til okkar bjóðum einnig upp á fjarþjónustu í gegnum fjarfundabúnað, sé þess óskað. Hvort sem þú býrð í Hafnarfirði eða annars staðar á landinu, getum við veitt þér faglega lögfræðiaðstoð hvar og hvenær sem er.

Hafa samband
Fylltu inn formið hér fyrir neðan og við svörum fyrirspurn þinni eins fljótt og auðið er.
