Forsjá og lögheimili

Forsjá og lögheimili barna

Forsjá og lögheimili barna eru meðal þeirra atriða sem foreldrar sem skilja, eða búa ekki saman af öðrum ástæðum, þurfa að taka afstöðu til. Þá þarf að ákveða umgengni barnsins við það foreldri sem það á ekki lögheimili hjá. Einnig þarf að taka afstöðu til hvernig það foreldri sinnir framfærsluskyldu sinni gagnvart barninu. Er það ýmist gert með greiðslu meðlags eða samkvæmt samningi.

Forsjá barns

Forsjá lýtur að því hver eða hverjir fara með forræði barns og taka ákvarðanir um t.d. heilbrigðismál, menntun og búsetu. Algengt er að foreldrar hafi sameiginlega forsjá, en í mörgum tilvikum fer annað foreldrið með forsjá barns.

Það gerist gjarnan, annað hvort við skilnað eða vegna annarra atvika, að annað foreldrið vilji breyta því fyrirkomulagi sem er í gildi. Er þá sent krafa þar að lútandi til sýslumanns og er hinu foreldrinu kynnt krafan. Komist foreldrar ekki að samkomulagi um forsjá barns er þeim skylt að sækja sáttameðferð. Komist þau ekki að niðurstöðu þar þarf það foreldri, sem vill gera breytingu á gildandi fyrirkomulagi, að leita til dómstóla til að fá leyst úr þeim ágreiningi sem er til staðar.

Lögheimili

Lögheimili barns segir til um hvar barn er skráða til búsetu, en lögheimili barns hefur ýmiskonar réttaráhrif.

Það foreldri sem barn á lögheimili hjá hefur rétt til að taka allar meiri háttar ákvarðanir varðandi daglegt líf barns, svo sem um hvar það hefur búsetu innan lands. Lögheimilisforeldri velur einnig skóla og/eða leikskóla barns, tekur ákvarðanir um venjulega eða nauðsynlega heilbrigðisþjónustu og hefur val um reglubundnar tómstundir barnsins.

Á lögheimilisforeldri hvílir þó samráðsskylda við hitt forsjárforeldrið. Á foreldrinu hvílir einnig skylda til að tryggja rétt barnsins til umgengni við hitt foreldrið og að umgengni fari fram eins og um hefur verið samið.

Ágreiningur um forsjá eða lögheimili

Ef upp kemur ágreiningur milli foreldra um forsjá eða lögheimili, er mikilvægt að leita sér lögfræðilegrar ráðgjafar og njóta traustrar ráðgjafar allt frá upphafi máls.

Lögmaður okkar getur:

  • Ráðlagt þér um réttindi og skyldur hvors foreldrisins.
  • Aðstoðað við samningsgerð vegna forsjár, lögheimilis eða umgengni.
  • Sinnt samskiptum við gagnaðila eða lögmann hans meðan mál er til meðferðar.
  • Undirbúið mál til meðferðar hjá sýslumanni eða dómstólum.

Elísabet Péturdóttir lögmaður vegna forsjá, lögheimilis og umgengni barna í kjölfar skilnaðar eða annarra atvika
Elísabet Péturdóttir lögmaður

Hafa samband

Hafa samband við Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar vegna réttinda barna
📧 loghaf@loghaf.is | ☎️ 5654550 | 📍 Dalshraun 5, 220 Hafnarfirði

← Back

Your message has been sent