Erfðamál
Fagleg ráðgjöf og aðstoð í erfðamálum getur skipt sköpum
Lögmaður okkar býður upp á sérhæfða lögfræðiþjónustu í erfðamálum. Hvort sem þú vilt gera erfðaskrá, þarft aðstoð við skipti á dánarbúi eða vilt fá ráðgjöf um erfðamál að þá getum við aðstoðað þig.
Við veitum meðal annars aðstoð við:
- Gerð erfðaskrár og kaupmála
- Skipti á dánarbúi
- Aðstoð við skjalagerð vegna fyrirframgreidds arfs
- Ráðgjöf og aðstoð vegna setu í óskiptu búi
- Ráðgjöf og önnur erfðamál
Hjúskapur, skilnaður og sambúðarslit
Lögfræðileg ráðgjöf á öllum stigum hjúskapar og sambúðar
Við veitum þér sérfræðiráðgjöf og þjónustu í málum sem tengjast sambúð og hjúskap. Hvort sem þú vilt útbúa kaupmála, ert að fara í gegnum skilnað eða þarft aðstoð vegna annarra mála þá erum við hér til að aðstoða þig. Hafðu samband og lögmaður okkar aðstoðar þig við að finna bestu lausnina.
Við aðstoðum við:
- Gerð kaupmála og sambúðarsamninga
- Fjárskiptasamninga
- Mál er varða forsjá, lögheimili og umgengni
- Beiðni um opinber skipti
- Samskipti við gagnaðila eða lögmann hans
- Önnur ráðgjöf
Réttindi barna
Við sérhæfum okkur í málefnum barna og fjölskyldna – lögmaður okkar sinnir málum vegna forsjár, lögheimilis, umgengni og barnaverndar
Réttindi barna eru í brennidepli í allri okkar lögfræðiþjónustu. Við veitum faglega og trausta lögfræðilega aðstoð í málum sem varða forsjá barna, ákvörðun um lögheimili, umgengni foreldris og barns sem og vegna annarra réttindi barna. Lögmaður okkar hefur víðtæka reynslu í þessum mikilvæga málaflokki og vinnur markvisst að lausnum sem þjóna hagsmunum barnsins og fjölskyldunnar allrar.
Við getum aðstoðað þig með:
- Samkomulag um forsjá, lögheimili og umgengni
- Ráðgjöf í umgengnismálum
- Að leita til stjórnvalda eða dómstóla vegna forsjá, lögheimilis eða umgengni
- Gerð samkomulags
- Samskipti við gagnaðila eða lögmann hans
- Barnaverndarmál
Lesa meira um réttindi barna→
Barnaverndarmál
Fagleg aðstoð í barnaverndarmálum – lögmaður með fyrir þína hagsmuni
Barnaverndarmál eru oft meðal viðkvæmustu mála sem fjölskyldur standa frammi fyrir. Hvort sem þú þarft aðstoð vegna afskipta barnaverndarþjónustunnar, boðaða fundi hjá barnavernd eða vilt tryggja rétt barnsins og þinn rétt sem forsjáraðila, þá getur traustur lögmaður skipt sköpum.
Við aðstoðum m.a. við:
- Samskipti við barnavernd og aðrar stofnanir
- Málsvörn í barnaverndarmálum
- Að sækja um gjafsókn
- Ráðgjöf
Lögræðismál
Lögræðismál – Lögfræðileg aðstoð við viðkvæmar aðstæður
Lögfræðiþjónusta Hafnarfjarðar veitir einstaklingum, aðstandendum og forráðamönnum faglega og nærgætnar lögfræðiráðgjöf í lögræðismálum. Lögræðismál snúa oft að viðkvæmum aðstæðum og mikilvægt er að rétt sé staðið að öllum skrefum í ferlinu, hvort sem um er að ræða sviptingu lögræðis, fjárræðis eða aðra ráðstöfun.
Við aðstoðum m.a. við:
- Beiðni um sviptingu lögræðis
- Beiðni um sviptingu fjárræðis
- Ráðgjöf og aðstoð aðstandenda eða forráðamanna
- Málsmeðferð fyrir dómstólum
Við leggjum ríka áherslu á virðingu, vandaða málsmeðferð og að öll réttindi aðila séu virt í hvívetna.
Samskipti við stjórnvöld
Ráðgjöf og aðstoð í stjórnsýslumálum – lögmaður sem tryggir þinn rétt gagnvart stjórnvöldum
Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar veitum einstaklingum og fyrirtækjum trausta lögfræðilega aðstoð í stjórnsýslumálum og samskiptum við opinbera aðila. Ef þú telur stjórnvald hafa brotið gegn réttindi þínum eða vilt kæra ákvörðun sem tekin hefur verið í þínu máli, er mikilvægt að fá lögmann með sérþekkingu á stjórnsýslurétti til að gæta hagsmuna þinna.
Við aðstoðum með:
- Kærur til kærunefnda, ráðuneyta eða annarra aðila
- Kvörtun til Umboðsmanns Alþingis
- Umsóknir um styrki, leyfi eða réttindi
- Greinargerðir til stjórnvalda
- Málskot til dómstóla
Lesa meira um stjórnsýslurétt og kærumál→
Vinnuréttur
Fagleg lögfræðiráðgjöf í vinnuréttarmálum – fyrir bæði launþega og atvinnurekendur
Vinnuréttur snertir réttindi og skyldur í ráðningarsamböndum, hvort sem um er að ræða launþega, verktaka eða vinnuveitendur. Þegar ágreiningur kemur upp – vegna uppsagnar, launa, veikinda, eineltis eða réttinda – getur verið mikilvægt að fá aðstoð lögmanns sem þekkir vinnulöggjöf og dómvenjur.
Við veitum aðstoð við:
- Ráðgjöf vegna réttinda á vinnumarkaði
- Ágreining vegna atvika á vinnumarkaði, svo sem uppsagnar, áminningar og EKKO mála
- Ráðgjöf vegna EKKO mála, þar á meðal yfirferð viðbragðsferla o.fl.
- Samskipti við stéttarfélög o.fl.
Mannréttindi
Lögmaður veitir þér faglega aðstoð þegar brotið er á réttindum þínum
Mannréttindi eru grundvallarréttindi sem njóta verndar samkvæmt stjórnarskrá Íslands, alþjóðlegum mannréttindasamningum og íslenskum lögum. Rétturinn til jafnræðis, menntunar, tjáningarfrelsis, trúfrelsis og réttlátrar málsmeðferðar eru aðeins dæmi um þau réttindi sem tryggð eru samkvæmt lögum – en því miður er ekki alltaf gætt að þeim í framkvæmd.
Við aðstoðum einstaklinga og hópa við:
- Kvartanir til viðeigandi stofnana vegna brota á mannréttindum
- Að vísa málum til dómstóla
- Samskipti við stjórnvöld, stofnanir og nefndir
Menntamál
Sérhæfð lögfræðiþjónusta fyrir nemendur, foreldra, kennara og skólastjórnendur
Við veitum sérhæfða lögfræðilega aðstoð í menntamálum, hvort sem um ræðir réttindi og skyldur nemenda, starfsfólks skóla eða stofnana innan menntakerfisins. Við höfum mikla reynslu í málefnum sem snúa að stjórnsýslu skóla, beitingu viðurlaga, aðgengi að stuðningi og réttindum foreldra og barna.
Við aðstoðum við:
- Fyrirsvar vegna mála hjá menntastofnunum eða ráðuneyti
- Kvartanir eða kærur til ráðuneytis eða umboðsmanns Alþingis
- Mál er varða vinnuumhverfi kennara
- Ráðgjöf vegna réttarumhverfis menntamála
Sakamál
Verjandi og réttargæslumaður – málsvörn og málsmeðferð fyrir dómstólum
Elísabet Pétursdóttir lögmaður tekur að sér verjenda- og réttargæslustörf í sakamálum og veitir skjólstæðingum sínum faglega aðstoð á öllum stigum málsins. Hún vinnur ötullega að hagsmunum umbjóðenda sinna og gætir þess að réttindi séu virt – allt frá fyrstu skýrslutöku hjá lögreglu og þar til málinu er lokað eða dómur gengur.
Sáttamiðlun
Lausn á deilu án málaferla
Sáttamiðlun er árangursrík og vaxandi leið til að leysa ágreining utan dómstóla – oft með minni kostnaði, skemmri málsmeðferðartíma og án átaka. Í stað þess að dómari skeri úr fá aðilar kost á að leiða samtalið sjálfir með aðstoð sáttamiðlara og finna sanngjarna lausn.
Elísabet Pétursdóttir, lögmaður og sáttamiðlari, hefur lokið námi í sáttamiðlun og er félagi í fagdeild Sáttar, samtökum fagfólks á þessu sviði. Hún aðstoðar einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki við að leysa úr ágreiningi með virðingu, jafnvægi og hagsmuni beggja aðila að leiðarljósi.
Sérsvið Elísabetar í sáttamiðlun:
- Fjölskyldumál – forsjá, umgengni, fjárskipti o.fl.
- Erfðamál og deilur milli ættingja
- Vinnustaðamál
- Deilur milli nágranna
📍 Dalshraun 5, Hafnarfjörður
📞 565 4550
📧 loghaf@loghaf.is
