Erfðaskrá – tryggðu að vilji þinni sé virtur
Erfðaskrá er mikilvægt lögfræðilegt skjal af ýmsum ástæðum. Með slíku skjali er ekki eingöngu ákveðið hvernig eigum viðkomandi verður ráðstafað eftir andlát. Slíkt skjal gjarnan nýtt til að tryggja rétt langlífari maka til setu í óskiptu búi. Einnig er algengt að kveðið sé á um að arfur sem eftir viðkomandi fellur verði að séreign erfingja hans í hjúskap.
Margir fresta gerð erfðaskrár, en hún getur skipt sköpum við ákveðnar aðstæður. Dæmi um slíkt er í hjónabandi þar sem annar aðilinn á börn frá fyrra sambandi. Eins er hún mikilvæg í sambúð án hjúskapar ef vilji stendur til að sambúðarmaki taki arf eða ef vilji stendur til að ráðstafa eignum með öðrum hætti en erfðalög mæla fyrir um.
Hvernig geri ég erfðaskrá?
Erfðaskrá er skjal þar sem vilja viðkomandi er lýst. Hún þarf að uppfylla ákveðin formskilyrði samkvæmt erfðalögum og vera að efni sínu í samræmi við hún. Hún þarf að vera skrifleg, undirrituð í viðurvist votta eða lögbókanda og geymd þannig að hún finnist þegar á hana reynir.
Lögmaður okkar getur aðstoðað þig við:
- Að veita þér upplýsinga um réttaráhrif erfðaskrár eða einstakra ákvæða hennar
- Uppsetningu erfðaskrár í samræmi við lög og vilja þinn
- Val á vottum, meðferð skjalsins eða geymslu þess
- Önnur atriði er varðar erfðamál.
Afhverju að leita til lögmanns?
Lögfræðileg aðstoð við gerð erfðaskrár tryggir að skjalið sé gilt og að túlkun viljayfirlýsingarinnar verði skýr, sem getur komið í veg fyrir deilur síðar meir. Oft reynir á gildi slíkra skjala við skipti á dánarbúi og þá skiptir máli að skjalið hafi verið útbúið með réttum og löglegum hætti.
Bókaðu ráðgjöf
Ef þú vilt fá aðstoð við gerð erfðaskrár, fá endurskoðun á eldri erfðaskrá eða aðra ráðgjöf varðandi erfðamál getur þú bókað ráðgjöf með því að fylla út formið hér að neðan eða hringt í síma 565 4550.
Lögmaður í erfðarétti

Hafa samband við Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar vegna erfðamála.
📧 loghaf@loghaf.is | ☎️ 5654550 | 📍 Dalshraun 5, 220 Hafnarfirði
