Erfðaréttur eru okkar fag
Erfðaréttur er meðal helstu viðfangsefna okkar hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar. Um er að ræða fjölbreytt réttarsvið þar sem við kappkostum við að veita öllum sem til okkar leita góða og skjóta þjónustu.
Erfðaskrá
Á ári hverju leitar fjöldi fólks til okkar til að fá aðstoð við gerð erfðaskrár. Ástæður fyrir gerð slíkra skjala eru fjölmargar.
Við leggjum áherslu á að allar þær erfðaskrár sem við útbúum endurspegli vilja þess sem hana gerir. Það getur skipt sköpum að njóta traustrar ráðgjafar við gerð erfðaskrár þar sem efni skjalsins, form þess og vottun þurfa að uppfylla kröfur erfðalaga. Ef á þessi atriði skortir verða þau ekki leiðrétt eftir á.
Þjónustan okkar felur í sér fund með lögmanni þar sem farið er yfir vilja þess sem gerir erfðaskrá, mögulegar útfærslur og veitt fræðsla um erfðarétt. Í kjölfar fundarins útbýr lögmaður okkar erfðaskrá á grundvelli þess sem þar kom fram.
Þegar skjalið er tilbúið fara lögmaður og viðskiptavinur í sameiningu yfir erfðaskránna til að ganga úr skugga um að erfðaskráin endurspegli vilja arfleifanda.
Seta í óskiptu búi
Þegar einstaklingur missir maka sinn reynist oft mikilvægt að fá heimild til setu í óskiptu búi. Hvort sem markmiðið er að tryggja fjárhagslegt öryggi um stundarsakir eða til æviloka.
Það fer eftir atvikum hverju sinni hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að fá heimild til setu í óskiptu búi.
Við veitum ráðgjöf til þeirra sem óska eftir setu í óskiptu búi og aðstoðum við að sækja um leyfið, sé þess óskað.
Fyrirframgreiddur arfur
Oft vilja foreldrar, ömmur eða afar styðja afkomendur sína fjárhagslega meðan þau eru enn á lífi. Í slíkum tilvikum getur verið hagkvæmt að færa eignir á milli kynslóða í formi fyrirframgreidds arfs.
Ráðgjöf lögmanns við þessa aðstæður getur sparað fjármuni og einfaldað málin til framtíðar. Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar veitum slíka ráðgjöf.
Lesa meira um fyrirframgreiddan arf→
Skipti á dánarbúi – Einkaskipti og opinber skipti
Þegar einstaklingur deyr stofnast dánarbú sem þarf að skipta á lögformlegan hátt. Skipti geta farið fram með einkaskiptum eða opinberum skiptum.
Ef erfingjar velja einkaskipti þarf að huga að mörgum þáttum, allt frá því að sækja um leyfi, útbúa erfðafjárskýrslu og einkaskiptagerð og til uppgjörs skulda búsins og úthlutunar arfs.
Við aðstoðum einstaklinga við að skipta búi í einkaskiptum.
Við aðstoðum einnig þá sem vilja sækja um opinber skipti og komum fram fyrir hönd erfingja sem hafa bú í opinberum skiptum.
Erfðaréttur – Við erum til staðar
Við veitum faglega og persónulega ráðgjöf í flestum málum sem varða erfðamál. Hafir þú spurningar varðandi erfðamál er þér velkomið að heyra í okkur.
Lögmaður í erfðarétti

Hafa samband við Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar vegna erfðamála.
📧 loghaf@loghaf.is
☎️ 5654550
📍 Dalshraun 5, 220 Hafnarfirði
