Fyrirframgreiddur arfur – Hvað þarf að hafa í huga?
Fyrirframgreiddur arfur er þegar erfingi fær hluta af mögulegum framtíðararfi áður en dánarbú er tekið til skipta, þ.e. meðan að arfleifandi er enn á lífi. Oftast er þetta hluti af því að foreldrar eru að færa eignir á milli kynslóða á hagkvæman hátt, t.d. þegar foreldrar vilja styðja börn sín fjárhagslega á meðan við íbúðarkaup.
Slík ráðstöfun getur verið skynsamleg, en það er mikilvægt að hún sé framkvæmd á réttan hátt og að tekin sé afstaða til tiltekinna atriða strax þegar gjörningurinn er gerður.
Fyrirframgreiddur arfur telst almennt til arfs við skipti á dánarbúi og kemur til frádráttar arfshluta þess sem hefur fengið arf greiddan fyrirfram nema arfsleifandi hafi ákveðið annað, t.d. með erfðaskrá.
Lögmaður getur aðstoðað við:
- Gerð skýrrar skjala um fyrirframgreiddan arf
- Ráðgjöf um skattalegar afleiðingar arfgjafar
- Skjalagerð sem tryggir að vilji gefanda sé virtur
Lögmaður í erfðamálum:

Hafa samband við Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar vegna erfðamála.
📧 loghaf@loghaf.is | ☎️ 5654550 | 📍 Dalshraun 5, 220 Hafnarfirði
