Skilnaður – lögmaður þér við hlið
Skilnaður er erfitt ferli fyrir flesta sem á það reyna og getur skipt sköpum fyrir jákvæða niðurstöðu að traustur lögmaður sé þér við hlið á þessum tímamótum. Við skilnað þarf að taka afstöðu til veigamikilla atriða, sem varða þig bæði fjárhagslegra og persónulegra.
Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar bjóðum upp á sérhæfða lögfræðiþjónustu varðandi skilað. Þannig getum við aðstoðað þig allt frá því að skilnaður er ákveðinn og þar til skilnaðarleyfi fæst gefið út. Lögmaður okkar tryggir þína hagsmuni og barna þinna og reynir að flýta skilnaðarferlinu eins og unnt er, án þess þó að fórna þeim mikilvægu hagsmunum sem eru í húfi.
Aðkoma okkar að skilnaðarmálum getur verið allt frá því að eiga í samskiptum við gagnaðila, útbúa fjárskiptasamning, koma fram hjá sýslumanni, leggja fram kröfu um opinber skipti eða málsvari fyrir dómstólum, rati mál þangað.
Fjárskiptasamningur við skilnað
Fjárskiptasamningur er mikilvægur hluti af skilnaðinum eða eftir atvikum sambúðarslitunum. Með honum eru ákveðið um hvernig eignum og skuldum verður skipt á milli aðila eftir skilnað eða sambúðarslit. Samningurinn er samkomulag milli aðila um fjárhagslega hagsmuni.
Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar gætum réttinda viðskiptavina okkar og aðstoðum þá við gerð fjárskiptasamnings.
Lesa meira um fjárskiptasamninga→
Fjárskipti við skilnað – opinber skipti
Ef samningaviðræður vegna fjárskipta hafa ekki borið árangur, er hægt að óska eftir opinberum skiptum hjá dómstólum. Við veitum aðstoð við að útbúa slíka beiðni og koma henni í réttan farveg.
Forsjá, lögheimili og umgengni barna
Eftir skilnað verður að taka ákvarðanir um forsjá, lögheimili og umgengni barna. Þetta eru mikilvægar ákvarðanir sem hafa áhrif á daglegt líf og velferð barnsins og foreldranna.
Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar veitum ráðgjöf og aðra aðstoð til foreldra sem standa frammi fyrir slíkum ákvörðunum, með það að markmiði að finna lausnir sem tryggi bestu hagsmuni barnsins og foreldranna.
Lesa meira um forsjá og lögheimili→
Önnur ráðgjöf þegar skilnaður verður – Við erum til staðar
Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar bjóðum upp á sérhæfða og persónulega ráðgjöf fyrir þau sem er að fara í gegnum skilnað.
Lögmaður í skilnaðarmálum

Hafa samband við Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar vegna skilnaðarmála:
📧 loghaf@loghaf.is | ☎️ 5654550 | 📍 Dalshraun 5, 220 Hafnarfirði
Nánari upplýsingar um skilnaðarferlið má finna á vef Sýslumannsins.
