Fjárskiptasamningur – skilnaður
Fjárskiptasamningur á milli hjóna er skilyrði þess að fá útgefið skilnaðarleyfi hjá sýslumönnum. Það á við hvort sem hjón ætli að skilja að borði og sæng eða fá beinan lögskilnað.
Hvaða þýðingu hefur fjárskiptasamningur?
Með fjárskiptasamningi er fjárfélagi hjóna slitið. Með samningnum taka aðilar afstöðu til þess hvernig eignum og skuldum verður skipt á milli aðila við skilnað. Meginreglan við skilnað er svonefnd helmingaskiptaregla en aðilum er frjálst að semja á annan hátt, kjósi þeir það. Þó geta ákvæði laga, kaupmála eða fyrirmæli í erfðaskrá mælt fyrir um annað en helmingaskipti.
Samningurinn er skuldbindandi fyrir aðila og það getur reynst þrautinni þyngra að fá samningnum hnekkt síðar meir, ef aðilar eru ekki sáttir við hann. Það er því mikilvægt að aðilar taki ákvarðanir að vel ígrunduðu máli. Þannig mælum við með að aðilar ráðfæri sig við lögmann um þýðingu skjalsins, ef þeir eru í vafa. Oftar en ekki eru verulegir hagsmunir í húfi og því getur reynst dýrkeypt að samþykkja samning án þess að átta sig almennilega á efni hans.
Lögfræðiþjónusta Hafnarfjarðar leggur ríka áherslu á að veita trausta og áreiðanlega þjónustu til einstaklinga varðandi fjárskiptasamninga.
Aðkoma okkar
Aðkoma okkar er mismunandi eftir atvikum hvers máls en hún getur verið allt frá því að lesa yfir fyrirliggjandi samning og gera athugasemdir ef þeirra er þörf til þess að semja við gagnaðila og útbúa fjárskiptasamning. Þá getur þurft að útbúa skjöl vegna eignartilfærslu.
Lesa um önnur atriði varðandi skilnað →
Bókaðu ráðgjöf
Hafa samband við Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar vegna fjárskiptasamnings eða annarra atriða er varða skilnað.
Lögmaður – fjárskiptasamningur

📧 loghaf@loghaf.is | ☎️ 5654550 | 📍 Dalshraun 5, 220 Hafnarfirði
