Kaupmáli

Kaupmáli – samningur um skiptingu eigna í hjónabandi

Kaupmáli er lögfræðilegt skjal þar sem hjón semja um að tilteknar eignir skuli vera séreign annars aðilans í hjúskapnum. Með slíkum samningi er hægt að ákveða hvernig eignir skiptast við skilnað eða við andlát. Oft eru kaupmálar gerðir samhliða erfðaskrám.

Með kaupmála má skapa fyrirsjáanleika um skiptingu eigna og draga úr hættu á ágreiningi. Hann getur verið mikilvægt skjal ef annar aðilinn hefur komið með eignir umfram hinn inn í hjúskapinn, rekur fyrirtæki eða hefur fengið arf eða aðrar gjöfir sem hjón vilja halda utan hjúskapareigna.

Kaupmála má gera í aðdraganda hjúskapar eða eftir að til hjúskapar hefur verið stofnað.

Hvenær er kaupmáli mikilvægur?

  • Þegar annað eða bæði hjónin eiga eignir fyrir hjónabandið
  • Til að tryggja að arfur eða gjafir haldist sem séreign
  • Ef hjón vilja tryggja ákveðna skiptingu ef sambandið endar
  • Til að forðast deilur milli eftirlifandi maka og barna eftir andlát

Hvernig geri ég kaupmála?

Kaupmáli þarf að vera í skriflegur, undirritaður af báðum aðilum og staðfestur af tveimur vottum. Að auki þarf hann að vera skráður hjá sýslumanni til að öðlast fulla réttaráhrif gagnvart þriðja manni.

Kaupmáli er ekki einungis formsatriði heldur mun hann hafa veruleg áhrif á réttindi maka og erfingja síðar meir. Aðstoð lögmanns við gerð kaupmála tryggir að kaupmálinn sé í samræmi við lög, skýr að efni og að vilji aðilanna verði virtur.

Lögmaður okkar getur aðstoðað þig við:

  • Ráðgjöf um efni og áhrif kaupmála
  • Samningu kaupmála
  • Umsýslu við undirritun, vottun og skráningu
  • Endurskoðun á eldri kaupmálum eða ráðgjöf í tengslum við breytingar

Bókaðu ráðgjöf

Ef þú vilt fá aðstoð við gerð kaupmála, fá yfirferð á eldri samningi eða ræða eignaskiptamál getur þú bókað ráðgjöf með því að fylla út formið hér að neðan eða hringt í síma 565 4550.

Lögmaður í gerð kaupmála

Elísabet Péturdóttir lögmaður - kaupmáli.
Elísabet Péturdóttir lögmaður kaupmáli

Hafa samband við Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar vegna erfðamála.
📧 loghaf@loghaf.is | ☎️ 5654550 | 📍 Dalshraun 5, 220 Hafnarfirði

Hafðu samband við Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar:

← Back

Your message has been sent