Barnaverndarmál

Barnaverndarmál – lögmaður þér við hlið

Barnaverndarmál eru mál þar sem þörf er á traustri og skjótri aðstoð lögmanns. Við hjá Lögfræðiþjónnustu Hafnarfjarðar leggjum áherslu á að veita góða þjónustu í þessum málaflokki, enda snerta þessi mál mikilvægustu og verðmætustu hagsmuni fjölskyldunnar hverju sinni.

Margir foreldrar sem hafa reynslu af barnaverndarmálum hafa lýst yfir létti þegar lögmaður tekur yfir samskipti við barnavernd og/eða þegar lögmaður er foreldrum innan handar við meðferð slíkra mála.

Það skiptir sköpum fyrir farsæla niðurstöðu slíkra mála að þau séu faglega unnin og hagsmuna fjölskyldunnar gætt af kostgæfni, allt frá upphafi máls.

Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar leggjum metnað í að tryggja foreldrum framúrskarandi lögfræðiaðstoð á þessu sviði. Markmið okkar er ætíð að tryggt sé að réttindi foreldra og barna séu virt í hvívetna í þeim málum sem við komum að.

Farsæl lausn fyrir foreldra og barn skiptir okkur raunverulega máli.

Aðkoma lögmanns okkar getur m.a. verið fólgin í:

  • Ráðgjöf og aðstoð við foreldra vegna máls sem er til meðferðar hjá barnaverndarþjónustu.
  • Hagsmunagæsla gagnvart barnaverndarnefnd, fyrir barnavernd, umdæmaráði, dómstólum eða eftir atvikum öðrum aðilum.
  • Liðsinni við málsmeðferð hjá sömu aðilumþ
  • Ritun greinargerðar, tölvupósta eða annnarra gagna sem nauðsynleg eru fyrir meðferð máls.
  • Vinna umsóknir um gjafsókn.

Gjafsókn

Þegar inngrip barnaverndar enda fyrir dómstólum eiga foreldrar alla jafna rétt á gjafsókn. Hún felur í sér að ríkið greiðir kostnað við lögmann fjölskyldunnar og annan kostnað vegna málsins. Þannig þurfa foreldrarnir ekki að bera kostnað vegna málsins. Við aðstoðum þig við að sækja um gjafsókn.

Lögmaður vegna barnaverndarmála:

Elísabet Pétursdóttir - lögmaður sem sér um barnaverndarmál

Elísabet Pétursdóttir lögmaður

📧 loghaf@loghaf.is ☎️ 5654550📍 Dalshraun 5, 220 Hafnarfirði

Þurfir þú á aðstoð lögmanns að halda í barnaverndarmáli getur þú fyllt inn formið hér að neðan og lögmaður okkar hefur samband eins fljótt og auðið er.

← Back

Your message has been sent