Gjaldskrá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar fyrir árið 2026
📧 loghaf@loghaf.is | ☎️ 5654550 | 📍 Dalshraun 5, 220 Hafnarfirði
1. Almenn ákvæði gjaldskrár þessarar
1. gr.
Gjaldskrá þessi hefur að geyma viðmiðunarreglur um gjaldtöku sem viðskiptamönnum ber að greiða fyrir veitta þjónustu hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar nema um annað hafi verið samið.
Gjaldskrá þessi er í samræmi við 24. gr. laga um lögmenn, nr. 77/1998. Lögmannafélag Íslands fer með úrskurðarvald um endurgjald fyrir störf lögmanna, sbr. V. kafli sömu laga.
Gjaldskrá þessi er birt á vefsíðu Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar og ber viðskiptamaður ábyrgð á að kynna sér hana.
Viðskiptamenn eru ábyrgir fyrir greiðslu þóknunar og útlagðs kostnaðar óháð því hvort þóknun fáist greidd af hálfu gagnaðila í heild eða að hluta.
2. gr.
Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar er heimilt að áskilja sér þóknun samkvæmt tímagjaldi, sbr. 4. gr. gjaldskrár þessarar, samningsbundna þóknun eða þóknun sem mótast af þeim fjárhagslegu hagsmunum sem tengjast því verki sem unnið er. Eðli verks og/eða samningur lögmanns og viðskiptamanns ræður því hvaða aðferði er notuð við ákvörðun á þóknun.
Lögfræðiþjónusta Hafnarfjarðar skal kynna fyrir viðskiptamanni í upphafi verks ef önnnur aðgerð en þóknun samkvæmt tímagjaldi er notuð. Hafi slíkt ekki verið gert reiknast þóknun samkvæmt tímagjaldi.
3. gr.
Allar þóknunarfjárhæðir í gjaldskránni eru tilgreindar án virðisaukaskatts sem er 24%. Virðisaukaskattur reiknast ofan á þóknun.
2. Tímagjald samkvæmt gjaldskrá
4. gr.
Tímagjald er frá kr. 33.500. Lágmarkseining í tímavinnu er 0,25 klukkustund.
Í tímagjaldinu er innifalinn allur nauðsynlegur skrifstofukostnaður, svo sem ljósritun, vélritun og tölvupóstsendingar.
Þegar þóknun er ákvörðuð samkvæmt tímagjaldi getur viðskiptamaður óskað eftir útskrift úr tímaskrá lögmanns.
Tímagjald skal alltaf miðast við gildandi gjaldskrá þegar verkið er unnið.
3. Innheimtur
5. gr.
Grunngjald innheimtuþóknunar er 50.000 kr.
Við bætist, af samanlagðri fjárhæð höfuðstóls og vaxta:
25% af fyrstu 100.000 kr. innheimtufjárhæðar,
15% af næstu 300.000 kr. innheimtufjárhæðar,
10% af næstu 500.000 kr. innheimtufjárhæðar,
5% af næstu 5.500.000 kr. innheimtufjárhæðar og
3% af því sem umfram er.
Þegar stofnun kröfu hefur í för með sér aukna vinnu eða kostnað vegna eðli kröfunnar, s.s. um lögveðskröfur þegar kanna þarf þinglýstan eiganda og hvort eign sé á uppboði, eða annað þess háttar, er tekið sérstakt viðbótargjald samkvæmt 4. gr. fyrir þá vinnu.
6. gr.
Heimilt er að veita 25% afslátt af þóknun samkvæmt grein 5. gr. ef skuld er greidd innan 10 daga frá dagsetningu innheimtubréfs.
7. gr.
Kröfuhafi ber ábyrgð gagnvart lögmanni á greiðslu þóknunar og öllum útlögðum kostnaði lögmanns ásamt vöxtum.
8. gr.
Þóknun fyrir ritun greiðsluáskorunar, beiðni um aðför, nauðungarsölu og vörslusviptingu, kröfulýsingar, kröfu um gjaldþrotaskipti, afturköllun og ritun stefnu fer samkvæmt tímagjaldi, sbr. 4. gr.
Þóknun fyrir frestun aðfarar eða nauðungarsölu fer einnig skv. 4. gr.
9. gr.
Reikna skal innheimtuþóknun af samanlagðri fjárhæð höfuðstóls og vaxta.
10. gr.
Skuldari getur óskað eftir því að gera greiðslusamning þannig að kröfur verði stofnaðar í banka um hver mánaðamót. Vegna hverrar kröfu sem stofnuð er í banka í samræmi við greiðslusamning greiðir skuldari allt að kr. 1800.- í þjónustu- og umsýslugjald.
11. gr.
Fyrir athugun á einingastöðu fyrir fullnustugerð sem og könnun á fjárhagsstöðu einstaklinga og fyrirtækja, af öðru tilefni, svo sem leit í bifreiðaskrá, fasteignaskrá, vanskilaskrá og öðru greiðast að lágmarki kr. 27.325 en ef könnun er umfangsmikil greiðist gjald samkvæmt 4. gr.
5. Tjónabætur
12. gr.
Þóknun fyrir samninga um tjónabætur og uppgjör er hagsmunatengd.
Þóknun fer eftir samningi Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar og viðskiptamanns hverju sinni.
Þóknun er reiknuð af samanlagðri heildarfjárhæð ef tjónabætur eru sóttar til fleiri en eins aðila.
Ekki er greidd þóknun ef engar bætur fást greiddar.
Ákvæði þessarar greinar gilda þegar uppgjör fer fram eftir skaðabótalögum.
Þóknun fyrir innheimtu tjónabóta, þegar reka þarf málið fyrir dómstólum, er samkvæmt 4. gr.
5. Fjölskylduréttur
13. gr.
Þóknun fyrir gerð erfðaskrár er kr. 65.000. Innifalin í gjaldinu er ráðgjöf um erfðamál.
Ef gerð erfðaskrár felur í sér aukna vinnu eða kostnað vegna aðstæðna sem fyrir hendi eru er tekið sérstakt viðbótargjald fyrir þá vinnu. Fer þá um gjaldið samkvæmt 4. gr.
14. gr.
Þóknun fyrir gerð skiptasamnings, þegar samningsaðilar, hjón eða sambúðarfólk eru sammála um efni og gerð samningsins er kr. 150.000 kr. Innifalið í gjaldinu er ráðgjöf lögmanns.
Ef ágreiningur er um búskipti fer um þóknun samkvæmt 4. gr.
Ef gerð skiptasamnings felur í sér aukna vinnu eða kostnað vegna aðstæðna sem fyrir hendi eru er tekið sérstakt viðbótargjald fyrir þá vinnu. Fer þá um gjaldið samkvæmt 4. gr.
15. gr.
Þóknun fyrir þjónustu vegna forsjár og lögheimilis barna og/eða umgengnisréttar, fer samkvæmt 4. gr.
Þókunun vegna faðernis- og véfengingarmála er samkvæmt 4. gr.
Þóknun vegna barnaverndarmála og annara þeirra mála sem falla undir barnarétt fer samkvæmt 4. gr.
16. gr.
Þóknun fyrir gerð kaupmála er 65.000 kr. Innifalin í gjaldinu er ráðgjöf lögmanns.
Ef gerð kaupmála felur í sér aukna vinnu eða kostnað vegna aðstæðna sem fyrir hendi eru er tekið sérstakt viðbótargjald fyrir þá vinnu. Fer þá um gjaldið samkvæmt 4. gr.
17. gr.
Þóknun fyrir gerð sambúðarsamninga er 150.000 kr. Innifalin í gjaldinu er ráðgjöf lögmanns.
Ef gerð sambúðarsamnings felur í sér aukna vinnu eða kostnað vegna aðstæðna sem fyrir hendi eru er tekið sérstakt viðbótargjald fyrir þá vinnu. Fer þá um gjaldið samkvæmt 4. gr.
6. Búskipti, greiðslustöðvun, nauðasamningar
18. gr.
Þóknun fyrir skiptastjórn, aðstoð við greiðslustöðvun eða umsjón með nauðasamningum, fer samkvæmt tímagjaldi, sbr. 4. gr.
Í búum, þar sem um verulegar eignir er að ræða, er heimilt að reikna 25% álag á tímagjald vegna vinnu við fyrstu aðgerðir.
19. gr.
Þóknun fyrir einkaskipti dánarbúa, skiptastjórn samkvæmt erfðaskrá ot gæslu hagsmuna við búskipti í dánarbúum fer samkvæmt 4. gr.
Þóknun fyrir skjalagerð vegna slita á óskiptu búi eða vegna fyrirframgreidds arfs fer skv. 4. gr.
Um þóknun við opinber skipti, félagsslit og fjárslit milli hjóna og sambúðarfólks fer samkvæmt 4. gr.
7. Fasteignir
20. gr.
Þegar lögmaður selur fasteignir í tenglum við störf sín er þóknun lögmanns 2% af söluverðmæti auk vsk. Lágmarksgjald vegna sölu er þó 500.000 kr. auk vsk.
Þóknun fyrir athugun og yfirlestur samninga og skjala við kaup eða sölu fasteigna eða lausafjár, sem annar lögmaður eða fasteignasali hefur gert, er kr. 65.000.
Ef athugun eða yfirlestur felur í sér aukna vinnu eða kostnað vegna aðstæðna sem fyrir hendi eru er tekið sérstakt viðbótargjald fyrir þá vinnu. Fer þá um gjaldið samkvæmt 4. gr.
21. gr.
Þóknun fyrir gerð leigusamninga er kr. 120.000.
Ef gerð leigusamnings felur í sér aukna vinnu eða kostnað vegna aðstæðna sem fyrir hendi eru er tekið sérstakt viðbótargjald fyrir þá vinnu. Fer þá um gjaldið samkvæmt 4. gr.
8. Ýmis skjalagerð og ráðgjöf samkvæmt gjaldskrá
22. gr.
Um þóknun fyrir skjalagerð við stofnun félags fer samkvæmt 4. gr.
23. gr.
Þóknun fyrir gerð skuldabréfa og tryggingabréfa fer samkvæmt 4. gr.
24. gr.
Þóknun fyrir veðleyfi, veðbandslausn, umboð og ýmsar er kr. 65.000.
Ef gerð þessara skjala felur í sér aukna vinnu eða kostnað vegna aðstæðna sem fyrir hendi eru er tekið sérstakt viðbótargjald fyrir þá vinnu. Fer þá um gjaldið samkvæmt 4. gr.
25. gr.
Um þóknun fyrir munnlega ráðgjöf og leiðbeiningar fer samkvæmt 4. gr.
26. gr.
Um þóknun vegna eignaumsýslu og samninga um skuldaskil fer samkvæmt 4. gr.
9. Aksturskostnaður og dagpeningar
27. gr.
Heimilt er að reikna kostnað við akstur og ferðir með hliðsjón af reglum fjármálaráðuneytis um aksturskostnað og dagpeninga.
28. gr.
Fyrir störf utan stórhöfuðborgarsvæðisins greiðast aukalega dagpeningar samkvæmt sömu reglum fyrir hver dag sem hafinn er auk alls ferða og dvalarkostnaðar.
10. Ýmis ákvæði gjaldskrárinnar
29. gr.
Heimilt er að taka hærri þóknun en lýst er í gjaldskránni ef verkefni krefst vinnu utan reglulegs vinnutíma, vinna fer fram í öðru landi, á erlendu tungumáli eða hraða þarf afgreiðslu sérstaklega. Einnig ef verulegir hagsmunir vinnast.
30. gr.
Þóknun fyrir unnið verk er miðuð við þá gjaldskrá sem gildir þegar verkið er unnið.
31. gr.
Lögmaður getur krafist þess að viðskiptamaður greiði fyrir fram upp í þóknun og mánaðarlega útlagðan kostnað og greiðslur upp í þóknun eftir því sem verki miðar. Reikningar eru almennt gefnir út mánaðarlega og skuldfærðir af vörslureikningi. Fari staða á vörslureikningi niður fyrir umsamið lágmark krefst Lögfræðiþjónusta Hafnarfjarðar þess að viðskiptamaður leggi viðbótargreiðslu inn á vörslureikning.
32. gr.
Viðskiptamaður greiðir allan útlagðan kostnað, þar með talinn kostnað þingfestingargjöld, matsgerðir, ágripsgerð, aðkeyptar mætingar, akstur, ferða- og dvalarkostnaður eða hverju öðru nafni sem hann nefnist.
33. gr.
Ef þörf er á sérfræðiaðkomu annarra aðila en starfsmanna Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar að málarekstri og ráðgjöf skal þóknun vegna aðkomu þeirra greidd samkvæmt reikningi viðkomandi sérfræðings.
34. gr.
Gjaldskrá þessi sætir endurskoðun í janúar ár hvert.
Gjaldskrá þessi er birt með fyrirvara um villur.
