
Elísabet Pétursdóttir
Lögmaður / Sáttamiðlari
elisabet@loghaf.is
S: 5654550
Starfsferill

Sigmundur Ingi Sigurðsson
Framkvæmdarstjóri/ Lögfræðingur
sigmundur@loghaf.is
S: 5654550
Elísabet Pétursdóttir er lögmaður og eigandi lögmannsstofunnar. Hún er fædd og uppalin í Hafnarfirði þar sem hún sótti leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Elísabet var einnig virk í íþróttastarfi með FH á sínum yngri árum. Að loknu stúdentsprófi hóf hún nám við lagadeild Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan sem lögfræðingur.
Elísabet starfaði um tæplega tíu ára skeið sem lögfræðingur í mennta- og menningarmálaráðuneytinu, síðar mennta- og barnamálaráðuneytinu, þar sem hún sérhæfði sig m.a. í stjórnsýslurétti, réttindum barna og málum tengdum menntakerfinu.
Hún hefur verið skipuð í fjölmargar nefndir á vegum Stjórnarráðsins, þar á meðal um:
- réttindi barna
- upplýsinga- og tjáningarfrelsi
- skólamál og menntakerfi
Elísabet hefur haldið fjölda fyrirlestra um m.a. réttindi barna, erfðamál, sáttamiðlun, og fjölskyldurétt. Þá hefur hún lokið námskeiði í sáttamiðlun, sem nýtist vel við lausn fjölskyldumála, skilnaðarmála og annarra viðkvæmra mála.
Elísabet sinnir m.a. eftirfarandi málaflokkum:
- forsjármál og umgengni barna
- skilnaðarmál og fjárskipti
- erfðamál og skipti dánarbúa
- barnavernd og faðernismál
- stjórnsýsluréttur og kvartanir til umboðsmanns
- sakamál og réttargæsla
Framkvæmdastjóri
Sigmundur Ingi Sigurðsson, lögfræðingur og framkvæmdastjóri stofunnar, er einnig fæddur og uppalinn í Hafnarfirði. Hann stundaði íþróttir með Haukum og gekk í grunnskóla í bænum áður en hann hóf nám í Menntaskólanum í Reykjavík.
Sigmundur útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur jafnframt lokið meistaranámi (MS) í verkefnastjórnun frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Hann er D-vottaður verkefnastjóri með fjölbreytta reynslu úr íslensku atvinnulífi og opinberri stjórnsýslu.
Ef þú ert að leita að traustum lögmanni í Hafnarfirði með djúpa innsýn í réttindi barna, fjölskyldumál, stjórnsýslu eða erfðamál, þá veitum við þér þjónustu.
