Elísabet Pétursdóttir lögmaður hefur víðtæka sérhæfingu og áralanga reynslu af lögfræðistörfum, m.a. úr stjórnsýslunni og sem sjálfstætt starfandi lögmaður. Þá hefur hún verið skipuð í fjölda nefnda á vegum ríkis og sveitarfélaga. Elísabet hefur einnig lokið við nám í sáttamiðlun og er félagsmaður í Sátt – félagi sáttamiðlara.
Í störfum sínum Elísabet fjölbreyttum lögfræðiverkefnum fyrir einstaklinga, félagasamtök og stofnanir.
Elísabet Pétursdóttir lögmaður

Elísabet veitir faglega aðstoð í fjölbreyttum málaflokkum:
- Fjölskylduréttur
– Forsjár-, lögheimilis- og umgengnismál
– Skilnaðarmál og fjárskipti hjóna
– Hjúskaparmál, t.d. gerða kaupmála og erfðaskrár
– Faðernismál og véfenging faðernis - Erfðaréttur
– Gerð erfðaskrár
– Skipti á dánarbúum
– Fyrirframgreiddur arfur
– Ráðgjöf vegna erfðamála - Persónuréttur
– Lögræðissvipting
– Fjárræðissvipting
– Sjálfræðissvipting - Stjórnsýsluréttur og mannréttindi
– Samskipti við stjórnvöld
– Stjórnsýslukærur og kvartanir til Umboðsmanns Alþingis
– Menntamálaréttur og réttindi nemenda
– Tjáningafrelsi og æruvernd - Barnaverndarmál
- Sakamál
– Verjendastörf og réttargæsla í sakamálum - Íþróttaréttur
– Sérhæfing í málefnum barna og íþróttafélaga
– Réttindi iðkenda - Sáttamiðlun
– Fjölskyldumál- og erfðamál
– Vinnustaða- og menntamál
– Íþróttamál
– Önnur mál
Starfsreynsla og nefndarstörf
Elísabet Pétursdóttir hefur starfað hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar frá árinu 2023. Þar á undan starfaði hún í stjórnarráðinu, fyrst í mennta- og menningarmálaráðuneytinu og síðar mennta- og barnamálaráðuneyti, frá árinu 2014.
Elísabet hefur átt sæti í fjölda nefnda og stýrihópa, meðal þeirra eru:
- Lögfræðilegur tengiliður í stýrihópi Stjórnarráðsins um málefni barna
- Nefnd um umbætur á löggjöf varðandi tjáningar- og upplýsingafrelsi
- Stýrihópur um viðbrögð við #metoo yfirlýsingum íþróttakvenna
- Nefnd um endurskoðun undanþágukafla aðalnámskrár grunnskóla
- Stýrihópur um sjálfstætt starfandi grunnskóla
- Stýrihópur um að Ísland skapi sér afgerandi stöðu í upplýsingafrelsi
Menntun og endurmenntun
Elísabet hefur lagt áherslu á stöðuga starfsþróun og sótt fjölbreytt námskeið, m.a. um:
- Skipti dánarbúa og þrotabúa
- Sáttamiðlun (Sáttamiðlaraskólinn)
- Starfsmannamál og persónuvernd
- Upplýsingalög og fjölmiðlalöggjöf ESB
- Verkefnastjórnun og lagasetningu
- Þagnarskyldu og réttindi opinberra starfsmanna
- Lögfræðileg áhrif #metoo
Hafðu samband og lögmaður okkar heyrir í þér eins fljótt og auðið er
Ef þú vilt bóka viðtal eða fá ráðgjöf:
📧 elisabet@loghaf.is
📞 565 4550
📍 Dalshraun 5, Hafnarfjörður
