Mikilvæg réttindi – lögræðismál
Lögræðismál eru rekin á grundvellli lögræðislaga.
Lögræðislögum er ætlað að standa vörð um mikilvæg réttindi einstaklinga. Í meginatriðum fela lögin í sér réttinn til sjálfræðis og fjárræðis. Þessi réttindi eru grundvallaratriði í mannréttindum hvers og eins.
Fjárræðissvipting
Fjárræði felur í sér réttinn til að ráða sjálfur yfir eignum sínum og taka fjárhagslegar ákvarðanir. Þetta felur m.a. í sér réttinn til að ganga til samninga, stunda viðskipti, ráða yfir bankareikningum o.fl.
Undir ákveðnum kringumstæðum getur þó reynst nauðsynlegt að svipta einstaklinga þessum réttindum en er það þá yfirleitt til að vernda hagsmuni þess einstaklings sem ráðstöfunin beinist gegn.
Maki, ættingjar í beinan legg (börn eða barnabörn) eða sá erfingi sem stendur viðkomandi næst lögum samkvæmt getur farið fram á það við dómstóla að einstaklingur sé sviptur fjárræði.
Kostnaður vegna slíkra mála er almennt greiddur úr ríkissjóði, þ.á.m. kostnaður sem sá sem hefur uppi kröfuna hefur af málinu, svo sem lögmannskostnaður.
Það er mikilvægt að rétt sé staðið að undirbúningi slíkra mála og vandað sé til verka.
Lögræðissvipting
Lögræði er víðtækara hugtak en fjárræði en það nær til þess að einstaklingur ráði yfir sjálfum sér og sínum málefnum. Samkvæmt íslenskum lögum verður einstaklingur lögráða 18 ára og heldur yfirleitt lögræði sínu þar til hann deyr.
Undir ákveðnum kringumstæðum getur verið nauðsynlegt að svipta einstaklinga lögræði, svo sem vegna alvarlegrar fötlunar, geðraskana eða sjúkdóms.
Maki, ættingjar í beinan legg (börn eða barnabörn) eða sá erfingi sem stendur viðkomandi næst lögum samkvæmt getur farið fram á það við dómstóla að einstaklingur sé sviptur lögræði.
Kostnaður vegna slíkra mála er almennt greiddur úr ríkissjóði, þ.á.m. kostnaður sem sá sem hefur uppi kröfuna hefur af málinu, svo sem lögmannskostnaður.
Það er mikilvægt að rétt sé staðið að undirbúningi slíkra mála og vandað sé til verka.
Lögmaður – lögræðismál, fjárræðissvipting, sjálfræðissvipting og lögræðissvipting

📧 loghaf@loghaf.is | ☎️ 565 4550 | 📍 Dalshraun 5, 220 Hafnarfirði
