Verjandi í sakamálum

Verjandi í sakamáli

Þinn verjandi í sakamáli getur skipt sköpum. Við liðsinnum þér. Við leggjum áherslu á að veita trausta og skilvirka þjónustu.

Þegar einstaklingur stendur frammi fyrir því að vera sóttur til saka í sakamáli eru miklir hagsmunir í húfi – mannorðið, fjárhagurinn, starfsframinn og svo lengi mætti telja. Það er því mikilvægt að njóta áreiðanlegrar aðstoðar lögmanns sem gætir hagsmuna þinna af einurð – allt frá upphafi rannsóknar og út alla málsmeðferð.

Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar bjóðum upp á trausta og faglega þjónustu fyrir einstaklinga sem eru sakaðir um refsiverða háttsemi. Við tryggjum að réttindi skjólstæðinga okkar séu virt í hvívetna, bæði á rannsóknarstigi og fyrir dómstólum.

Standir þú frammi fyrir því að vera til rannsóknar í sakamáli eða hefur verið birt ákæra er þér alltaf velkomið að hafa samband fyrir frekari upplýsingar.

Lögfræðiaðstoð við meðferð sakamála

Þegar lögregla hefur afskipti af þér vegna gruns um refsivert brot getur skipt sköpum að hafa samband við lögmann eins fljótt og auðið er. Þú átt rétt á að hafa lögmann þér við hlið við meðferð málsins.

Við gætum hagsmuna þinna:

  • Í skýrslutöku hjá lögreglu
  • Við rannsókn máls
  • Vegna kröfu um rannsóknaraðgerðir, gæsluvarðhald eða farbann
  • Málsvörn fyrir dómi
  • Annarra atriða er varða sakamál.

Fagmennska og trúnaður

Við leggjum áherslu á trúnað, virðingu og fagmennsku. Hver skjólstæðingur fær persónulega þjónustu og virka ráðgjöf í gegnum allt ferlið.


Verjandi í sakamálum:

Elísabet Péturdóttir - verjandi í sakamálum
Elísabet Péturdóttir Verjandi í sakamálum

Elísabet Péturdóttir, lögmaður – reynsla af verjendastörfum
📧 loghaf@loghaf.is | ☎️ 5654550 | 📍 Dalshraun 5, 220 Hafnarfirði