Vinnuréttur
Vinnuréttur er eitt helsta starfsvið okkar hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar. Í vinnuréttarsamböndum geta skapast ýmis álitaefni þar sem reynir á réttindi og/eða skyldur, bæði vinnuveitandans og launþegans. Reynt getur á þessi álitaefni allt frá upphafi vinnuréttarsambands og þar til það er yfirstaðið.
Í málum á vettvangi vinnuréttar eru alla jafna miklir hagsmunir í húfi, bæði fjárhagslegir og persónulegir.
Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar veitum faglega ráðgjöf og aðstoð í málum af þessu tagi. Við þjónustum fjölda einstaklinga, fyrirtækja og stofnana á þessu sviði.
Almennur vinnuréttur
Okkar reynsla er að vinnuveitendur vilja gera hlutina vel og á faglegan hátt. Ákvarðanataka á vinnumarkaði getur þó verið flókin og kallar oft á lögfræðilega ráðgjöf. Oft eru gríðarlegir hagsmunir í húfi af því að gera hlutina rétt.
Í dag erum við fjölda fyrirtækja innan handar þegar kemur að málum er varða réttindi eða skyldur aðila í vinnuréttarsamböndum, svo sem vegna ráðningarsamninga, starfsloka, launakjara, trúnaðarskyldu eða fjölda annarra atriða.
Markmið okkar er að tryggja rétta, faglega og farsæla úrlausn mála.
Opinber starfsmannaréttur
Lögfræðiþjónusta Hafnarfjarðar þjónustan stofnanir og einstaklinga vegna starfsmannaréttar hjá hinu opinbera. Við höfum víðtæka reynslu af meðferð mála sem snúa að réttindum og skyldum opinberra starfsmanna.
Við veitum ráðgjöf og aðstoð í málum sem varða t.d. áminningar, uppsagnir, brottvikningar, skipulagsbreytingar og niðurlagningu starfa.
Einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi á vinnustöðum (EKKO)
Við höfum aðstoðað fjölda vinnustaða og einstaklinga vegna mála er varða einelti, kynferðislega eða kynbundbna áreitni, eða ofbeldi á vinnustað. Hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar bjóðum upp á trausta lögfræðiaðstoð í þessum viðkvæmu málum.
Við þekkjum vel þær réttarreglur sem gilda á málefnasviðinu og dómaframkvæmd um þessi málefni og veitum þér og þínu fyrirtæki ráðgjöf og stuðning á hverju stigi málsins.
Jafnréttismál
Lögfræðiþjónusta Hafnarfjarðar veitir einnig ráðgjöf og aðstoð í jafnréttismálum, hvort sem málið varðar jafnrétti kynjanna, jöfn tækifæri á vinnumarkaði eða aðra mismunun. Lögfræðiþjónusta Hafnarfjarðar vinnur að því að tryggja réttindi einstaklinga og jafna stöðu þeirra á vinnumarkaði í samræmi við lög og reglur.
Lögmaður í vinnurétti:

Hafðu samband
📧 loghaf@loghaf.is | ☎️ 5654550 | 📍 Dalshraun 5, 220 Hafnarfirði
