Réttindi barna
Réttindi barna eru okkur á Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar hugleikin. Við leggjum okkur fram við að ná fram úrlausnum í málum sem snerta börn sem eru barninu og fjölskyldunni allri fyrir bestu. Á stofunni er mikil þekking á málefnum barna og löng reynsla af því að fást við réttindi þeirra.
Við þekkjum að börnum er stöðu sinnar vegna tryggð margskonar réttindi í íslenskum lögum og alþjóðlegum samningum, sem sumir hverjir hafa verið lögfestir á Íslandi og skipta þessi réttindi miklu máli er leyst er úr lagalegum álitaefnum í málefnum barna. Við vitum að þess vegna þarf að vanda sig sérstaklega vel í þessum málum. Börn eiga sín réttindi óháð réttindum fullorðinna.
Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar erum til staðar þegar reynir á réttindi barna.
Menntamál
Við höfum mikla sérfræðiþekkingu á réttarumhverfi menntastofnana, bæði hvað varðar réttindi og skyldur nemenda, starfsfólks og skólans. Við aðstoðum einstaklinga og stofnanir sem þurfa rliðsinni á réttarsviðinu. Slík aðstoð getur verið fólgin í almennri ráðgjöf um réttindi eða skyldur, aðstoð vegna stjórnsýslukæru eða annars konar aðstoð á réttarsviðinu. Við sinnum einnig fræðslu á réttarsviðinu.
Hafðu samband ef þú vilt ef þig vantar aðstoð.
