Fjárræðissvipting – hvenær á hún við?

Iðulega fáum við fyrirspurnir frá aðstandendum fólks sem er með veikindi, sem verða þess valdandi að fólk getur ekki annast fjármál sín eða persónuleg málefni um úrræði sem standa til boða, svo sem fjárræðissvipting o.fl. Aðstandendur spyrja gjarnan hvaða úrræði eru í stöðunni þegar svo ber undir.

Eftirfarandi úrræði eru tæk en það fer eftir því á hvaða stigi veikindin eru hvaða leið er æskilegast að fara.

1. Umboð

Umboð er einfaldasta og minnst íþyngjandi úrræðið sem stendur til boða. Það byggir á ákvæðum samningalaga, nr. 7/1936. Meginforsenda þess að umboð sé gilt er að sá sem veitir umboðið hafi haft fulla getu og skilning á þýðingu þess að veita umboð og þeim afleiðingum sem það getur haft að veita öðrum heimild til að koma fram fyrir sína hönd.

Í þeim tilvikum sem veikindin eru á fyrstu stigum, og viðkomandi hefur enn fullan skilning á gjörðum sínum, er sú leið fær að veita umboð. Ef veikindin eru lengra gengin er þessi leið almennt ófær.

Umboð getur annað hvort náð til tiltekinna athafna, eins og að selja fasteign eða annast bankareikninga, eða verið allsherjarumboð.

Í þessum tilvikum getur sá er umboðið nær til sinnt fjármálum viðkomandi innan þeirra marka sem umboðið kveður á um.

2. Beiðni um skipun ráðsmanns

Skipun ráðsmanns er formlegra úrræði og er fjallað um úrræðið í lögræðislögum, nr. 71/1997. Um er að ræða vægara úrræði en fjárræðissviptingu.

Ráðsmaður er úrræði sem stendur einstaklingum til boða sem eiga erfitt með að sjá um fjármál sín vegna veikinda. Þeir geta þá sjálfir óskað eftir því að þeim verði skipaður ráðsmaður. Skilyrði þess að unnt sé að fara þessa leið er að viðkomandi geri sér grein fyrir þýðingu þessarar ráðstöfunar.

Áhrif þess að vera skipaður ráðsmaður eru þau að viðkomandi ræður ekki lengur yfir þeim eignum sem ráðsmaður hefur umsjón með. Ráðsmanni er falin umsjón bankareikninga, fasteigna, ökutækja og eftir atvikum fleiri eigna sem viðkomandi óskar eftir að ráðsmaður sinni.

Sá sem hefur óskað eftir ráðsmanni getur hvenær sem er óskað eftir því að fá ráðsmann leystan frá störfum og ræður upp frá því sjálfur yfir eignum sínum á ný.

3. Fjárræðissvipting

Fjárræðissvipting er mest íþyngjandi úrræðið er völ er á. Viðkomandi er þá sviptur fjárræði með dómsúrskurði. Þetta er úrræði sem aðeins er gripið til ef vægari úrræði duga ekki til eða hafa verið fullreynd.

Fjárræðissvipting felur í sér að viðkomandi er sviptur réttinum til að ráða sjálfur yfir fjármálum sínum.

Sá sem hefur verið fjárræðissviptur fær skipaðan lögráðamann sem ræður yfir fjármunum og öðrum verðmætum þess fjárræðissvipta.

Á lögráðamanni hvíla margvíslegar skyldur.

Fjárræðissvipting fer fram í gegnum dómstóla og er kostnaður af málinu í heild greiddur úr ríkissjóði, bæði fyrir þá aðstandendur sem krefjast fjárræðissviptingar og fyrir þann sem er fjárræðissviptur.

Óskir þú eftir frekari upplýsingum um ofangreind úrræði erum við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar til staðar fyrir þig.

Síða sýslumanns um lögræðismál

author avatar
Elísabet Pétursdóttir
Lögmaður hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar

Discover more from Lögfræðiþjónusta Hafnarfjarðar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading