Réttargæslumaður í sakamálum
Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar sinnum réttargæslu brotaþola í sakamálum. Ef brotaþoli á rétt á réttargæslumanni getur hann komið að málum á rannsóknarstigi og fyrir dómi.
Rannsókn og málsmeðferð sakamála geta reynt mikið á brotaþola og haft djúpstæð áhrif á líf einstaklings til langs tíma. Réttargæslumaður hefur það hlutverk að gæta hagsmuna brotaþola og veita honum lögfræðilega aðstoð og stuðning í gegnum þennan erfiða tíma.
Hlutverk réttargæslumanns er meðal annars:
- Ráðgjöf og aðstoð við brotaþola á meðan mál varir
- Aðstoð við undirbúning fyrir skýrslutöku og málsmeðferð
- Upplýsingagjöf um framvindu máls
- Setja fram kröfur um bætur vegna þess tjóns sem brotaþoli varð fyrir
- Vera viðstaddur meðferð máls
Neyðarsími stofunnar utan almenns opnunartíma er 8964550.

Elísabet Péturdóttir, lögmaður – réttargæslumaður
5654550 |
Dalshraun 5, 220 Hafnarfirði
