Stjórnsýsluréttur

Samskipti við stjórnvöld

Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar aðstoðum einstaklinga í samskiptum sínum við stjórnvöld. Slík þjónusta getur til að mynda verið fólgin í því að sækja þau réttindi sem viðkomandi er tryggð til opinberra aðila eða í að leggja fram stjórnsýslukæru hjá opinberum aðilum.

Oft upplifa einstaklingar hindranir í samskiptum sínum við stjórnvöld, þar sem þeim er vísað fram og til baka með erindi sín. Um starfsemi stjórnvalda gilda strangar reglur og málsmeðferð þeirra er formföst. Af þessum sökum er oft ráðlegt fyrir einstaklinga að ráðfæra sig við lögmann þegar þeir sækja réttindi sín til stjórnvalda en hagsmunir borgarana af slíkum ákvörðunum geta bæði verið persónulegir og/eða fjárhagslegir.

Stjórnsýslukærur

Að meginreglunni til eru ákvarðanir stjórnvalda kæranlegar, annað hvort til ráðuneytis eða sjálfstæðra kærunefnda. Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar aðstoðum einstaklinga og lögaðila sem vilja kæra ákvarðanir stjórnvalda eða kvarta undan starfsháttum þeirra. Slík aðstoð getur m.a. verið fólgin í ráðgjöf um hvert kæruleiðir og efni kærunnar. Það er þó algengarar að viðskiptavinir okkar óski eftir því að við komum fram fyrir þeirra hönd frá upphafi til enda.

Kvörtun til umboðsmanns Alþingis

Unnt að kvarta undan starfsháttum stjórnvalda til Umboðsmanns Alþingis að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar aðstoðum einstaklinga og lögaðila sem vilja leggja fram kvörtun hjá umboðsmanni.

Opinber innkaup

Lög um opinber innkaup tóku gildi árið 2016 og gilda þau um kaup opinberra aðila á vöru og þjónustu. Markmið laganna er að tryggja jafnræði fyrirtækja, stuðla að hagkvæmni í opinberum rekstri með virkri samkeppni og efla nýsköpun og þróun við innkaup hins opinbera á vörum, verkum og þjónustu. Við veitum ráðgjöf og aðra þjónustu í tengslum við lögin.

Aðstoð við ríki og sveitarfélög

Meðal viðskiptavina okkar eru sveitarfélög og ríkisstofnanir. Við hjá Lögmannsstofu Hafnarfjarðar aðstoðum og veitum ráðgjöf til ríkis, sveitarfélaga og stofnana á þeira vegum vegna þeirra álitaefna sem skapast á vettvangi þeirra. Á stofunni er löng reynsla og mikil þekking á starfsemi þessara aðila, sem eru oft á tíðum umfangsmikil og flókin. Strangar kröfur eru gerðar til þessara aðila um að framkvæmd verkefna þeirra, Af þessum sökum skapast oft þörf hjá þessum aðilum fyrir ýmsa sérfræðiþjónustu, þar á meðal lögmannsaðstoð.

Hafðu samband ef þú vilt vita meira. Stjórnsýsluréttur er fjölbreytt réttarsvið þar sem reynir á margkonar álitaefni.

← Back

Your message has been sent

www.loghaf.is