Erfðamál: Óskipt bú – get ég fengið heimild til að sitja í óskiptu búi?

a person holding a cross

Erfðaskrá um óskipt bú

Það getur skipt sköpum varðandi óskipt bú að huga að erfðamálum meðan bæði hjóna eru enn á lífi.

Meðal þess sem skynsamlegt er að huga að er hvernig það sem verður langlífara sér fyrir sér að haga málunum eftir fráfall þess sem verður skammlífara. Fráfall maka er þungbær lífsreynsla og kjósa margir að sitja í óskiptu búi í kjölfar slíks missis, annað hvort fyrst um sinn eða út ævina. Seta í óskiptu búi felur í raun í sér að skiptum á dánarbúi þess sem verður skammlífari makann er slegið á frest þar til hið langlífara fellur frá eða viðkomandi ákveður að skipta búinu.

Ef hjón eiga ekki eingöngu sameiginlega niðja er skynsamlegt að mæla fyrir um þessa heimild með erfðaskrá. Þannig má komast hjá því að það langlífara þurfi samþykki sérniðja þess skammlífara til setu í óskiptu búi.

Hvað er óskipt bú?

Í leyfi til setu í óskiptu búi felst að sá langlífari ræður einn yfir eignum búsins. Hann ber persónulega ábyrgð á skuldbindingum þess og þarf ekki leyfi annarra til að ráðstafa eignum búsins. Þannig hefur maki sem situr í óskiptu búi heimild til að selja eignir þess og kaupa nýjar. Þannig skapast til dæmis oft þörf til að skipta um húsnæði og er langlífari maka það heimilt. Sú skylda hvílir þó á þeim sem situr í óskiptu búi að gæta hæfilegrar fjárstjórnar.

Hvernig fæ ég heimild til að sitja í óskiptu búi?

Það er ekki sjálfgefið að langlífari maki fái heimild til setu í óskiptu búi eftir andlát maka síns. Frumforsenda þess að slík heimild fáist er að um hjón hafi verið að ræða, sem gengið hafa í hjúskap áður en hið skammlífara lést. Sambúðarmaki getur ekki fengið heimild til að sitja í óskiptu búi.

Framangreindu til viðbótar þar langlífari maki að vera fjárráða og fær til þess að sjá um fjármál sín. Þá þurfa eignir búsins að vera meiri en skuldir þess.

Í sumum tilvikum er langlífari makinn einnig háður samþykki barna þess skammlífari til að fá slíka heimild, en það á við ef hið skammlífara átti sérniðja.

Ef hjón áttu eingöngu sameiginlega erfingja þarf hið langlífara ekki samþykki erfingjanna til að fá heimild til að sitja í óskiptu búi.

Ef hjón áttu aftur á móti ekki eingöngu sameiginlega erfingja, þ.e.a.s. að hið skammlífara átti börn úr fyrra sambandi, þá þarf það sem lengur lifir samþykki sérniðja þess skammlífara til að fá leyfi til setu í óskiptu búi. Það má þó komast hjá þessu með því að hjón geri erfðaskrá sem kveður á um heimild þess sem verður langlífara til að sitja í óskiptu búi. Undir slíkum kringumstæðum geta erfingjarnir ekki krafist skipta á búinu, Langlífari maka er þó alltaf heimilt að skipta búinu, kjósi hann svo.

Hafðu samband fyrir frekari upplýsingar.

Nánari upplýsingar á vef Sýslumanns.

author avatar
Elísabet Pétursdóttir
Lögmaður hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar

Discover more from Lögfræðiþjónusta Hafnarfjarðar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading