Við og við gerist það að barn er ranglega feðrað og leiðrétta þarf faðerni. Algeng ástæða slíkra mála er að hjúskaparstaða móður hefur ekki verið réttilega skráð við fæðingu barns. Það kann að leiða til þess að sá maður sem móðirin var skráð í sambúð eða hjúskap með á þeim tíma er skráður faðir þess, þrátt fyrir að hann sé ekki eiginlegur faðir þess. Þessi staða leiðir af svonefndri pater est reglu, sem finna má í 2. gr. barnalaga. Í reglunni felst að barn er fjárkrafa feðrað eiginmanni móður eða þeim manni sem hún er skáð í sambúið með við fæðingu þess.
Þegar faðerni er ranglega skráð verður það ekki ekki leiðrétt nema með dómsmáli þar sem faðerni barns er hnekkt. Móðir barns, barnið sjálft (jafnvel þó það sé orðið fullorðið) eða sá maður sem skráður er faðir þess geta höfðað slík mál. Helsta sönnunargagnið í slíkum málum er mannerfðafræðileg rannsókn og er aðilum máls skylt að hlíta slíkri blóðrannsókn.
Sé niðurstaða rannsóknarinnar að skráður faðir er ekki faðir þess barns sem um ræðir lýkur málinu með þeim hætti. Er þá send tilkynning til Þjóðskrár og nafn föður afmáð af fæðingarvottorði barnsins. Er barn þá ófeðrað og er þá hægt að feðra barnið með faðernisviðurkenningu eða með því að höfða faðernismál fyrir dómi.
Viljir þú fá ráðgjöf um véfenginu faðernis eða faðernisviðurkenningu getur þú haft samband í gegnum netfangið loghaf@loghaf.is eða í gegnum síma 565-4550.


Leave a Reply