Til okkar leita gjarnan einstaklingar sem þurfa að fá faðerni barns staðfest eða leiðrétt. Þetta eru svonefnd faðernismál eða eftir atvikum véfengingarmál.
Þessi mál eru rekin fyrir dómstólum. Málsmeðferðartími slíkra mála er yfirleitt stuttur eða um nokkrar vikur.
Ef móðir barns, f.h. þess, höfðar málið greiðist málskostnaður úr ríkissjóði. Við meðferð þessara mála fer fram mannerfðafræðileg rannsókn (DNA próf) og ræðst niðurstaða málsins af niðurstöðu þess prófs.
Það er mikilvægt að ef vafi sé til staðar um faðerni barns að það sé leiðrétt. Barn á rétt á að þekkja uppruna sinn og báða foreldra sína. Því er um grundvallarréttindi barns að ræða.
Þegar niðurstaða í málinu liggur fyrir er send tilkynning til Þjóðskrár og nafn föður skráð eða eftir atvikum afskráð, hafi verið um véfengingarmál að ræða og niðurstaðan að skráður faðir sé í reynd ekki faðir barnsins.
Í sem þessum er mikilvægt að vanda til verka og leita til lögmanns sem þú treystir.
Ef þú þarft upplýsingar um faðernismál þá getur þú haft samband við okkur og við svörum eins fljótt og auðið er.


Leave a Reply