Þegar stofnað er til hjónabands er skilnaður sjaldnast það sem fólk sér fyrir sér. Á meðan hjónabandið varir er algengt að eignarmyndun verði auk þess sem fólk stofnar til skulda, ýmist vegna húsnæðiskaupa eða af öðrum ástæðum.
Skilnaður er þungbært ferli og á þeim tímamótum þarf fólk að taka afstöðu til þess hvernig eignum og skuldum skuli skipt. Sú staða er algeng við skilnað að hjón séu ekki sammála um þetta atriði í lok hjúskapar. Takist hjónum ekki að komast að samkomulagi með fjárskiptasamningi þurfa þau að setja bú sitt í opinber skipti, sem getur reynst gríðarlega kostnaðarsamt og tímafrekt.
Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar höfum orðið þess vör að áhugi á sáttamiðlun undir þessum kringumstæðum hefur aukist, enda getur sáttamiðlun verið skynsamlegur og hagkvæmur kostur. Takist sættir með aðilum í sáttamiðlun sparast yfirleitt tími og fjármunir.
Hvað er sáttamiðlun?
Sáttamiðlun er ferli þar sem hlutlaus þriðji aðili, sáttamaður, aðstoðar hjón við að ná samkomulagi um fjárskipti þeirra. Markmiðið er að finna lausnir sem báðir aðilar geta sætt sig við, án þess að þurfa að fara fyrir dómstóla. Þetta ferli hefur marga kosti umfram opinber skipti.
Hvers vegna að velja sáttamiðlun?
- Stjórn aðila máls yfir niðurstöðunni: Þegar hjón semja sjálf um fjárskipti sín hafa þau meiri stjórn yfir niðurstöðunni en þegar mál enda í opinberum skiptum. Þannig er unnt að taka tillit til sértækra þarfa og aðstæðna aðila máls sem skiptastjóri eða eftir atvikum dómari mun ekki taka tillit til við meðferð málsins við opinber skipti.
- Minni ágreiningur: Sáttamiðlun getur dregið úr ágreiningi og spennu milli hjóna, sem er sérstaklega mikilvægt ef þau eiga börn saman. Þá má nefna að samkomulag sem náðst hefur í sáttamiðlun er oft betur virt og fylgt eftir af báðum aðilum.
- Hraðari lausn: Ferlið er oft hraðara en að fara í opinber skipti, sem getur tekið marga mánuði eða jafnvel ár. Þetta getur verið mikilvægt fyrir hjón sem vilja ljúka skilnaðinum fljótt og halda áfram með líf sitt.
Sem fyrr segir er kostnaður við opinber skipti er oft mikill, en sáttamiðlun hefur oftast minni kosnað í för með sér.
Sáttamiðlun er skynsamlegur kostur fyrir hjón sem vilja ná samkomulagi um fjárskipti á yfirvegaðan og hagkvæman hátt. Með því að semja sjálf, í stað þess að láta þriðja aðila taka ákvörðun fyrir sig, geta hjón haft meiri stjórn yfir fjárskiptum sínum, dregið úr ágreiningi og sparað tíma og fjármuni.
Lögfræðiþjónusta Hafnarfjarðar býður upp á sáttarmiðlun. Ef samkomulag næst milli hjóna getur lögmaður okkar útbúið fjárskiptasamning á grundvelli þess samkomulags sem næst. Hafðu samband fyrir sáttamiðlun.


Leave a Reply