Málskostnaður – ýmis úrræði

Gjafsókn

Hvað er gjafsókn?

Gjafsókn er þegar kostnaður vegna dómsmáls, þar á meðal þóknun lögmanns og annar málskostnaður, er greiddur úr ríkissjóði. Hvort sem þú höfðar mál eða mál er höfðað gegn þér þá getur þér staðið gjafsókn til boða. Gjafsókn er aðeins veitt einstaklingum en ekki fyrirtækjum, félögum eða öðrum lögaðilum.

Hvernig sæki ég um gjafsókn?

Sótt er um gjafsókn til gjafsóknarnefndar (dómsmálaráðuneyti) en lögmaður okkar aðstoðar þig við að sækja um gjafsókn. Niðurstaða þess hvort þú fáir gjafsókn liggur almennt fyrir innan nokkurra vikna eða mánaða. Fáist gjafsókn er gefið út svonefnd gjafsóknarleyfi.

Eiga allir rétt á gjafsókn?

Nei, til þess að fá gjafsókn þarf að uppfylla tiltekin skilyrði. Tekjur þurfa t.d. að vera undir viðmiðunarmörkum, nægjalegt tilefni þarf að vera til staðar til að höfða mál eða taka til varna o.fl. Lögmaður okkar fer með þér yfir hvort líkur séu á að þú getir fengið gjafsókn vegna málsins.

Hafðu samband viljir þú heyra meira um gjafsókn.

Málskostnaðartrygging eða réttaraðstoðartrygging

Fjöldi trygginga innifelur svonefnda málskostnaðartryggingu eða réttaraðstoðartryggingu. Slíkar tryggingar greiða málskostnað þinn vegna ágreinings í einkamálum falli ágreiningsefnið undir skilmála tryggingarinnar. Lögmaður okkar skoðar með þér hvort mál þitt falli undir skilmálanna og aðstoðar þig við að sækja rétt þinn í trygginguna.

Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar um málskostnaðartryggingu eða réttaraðstoðartryggingu.

Hafa samband við Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar vegna málskostnaðar.


📧 loghaf@loghaf.is | ☎️ 5654550 | 📍 Dalshraun 5, 220 Hafnarfirði

← Back

Your message has been sent