Til okkar leita reglulega einstaklingar eða hjón sem hafa tekið ákvörðun um að skilja. Aðstæður undir slíkum kringumstæðum geta verið á alla vegu. Hverjar sem aðstæðurnar eru þá er staðan oftast sú að fólk vill að skilnaðurinn gangi hratt og örugglega fyrir sig, sem er vel skiljanlegt enda er þungbært að standa í því ferli sem skilnaður er.
Stundum verðum við þess þó vör að einstaklingi sem er að skilja er svo mikið í mun að fá skilnaðinn í gegn að hagsmunir hans fara forgörðum. Þannig samþykkir einstaklingur fjárskiptasamning sem er honum mjög í óhag eða afsalar sér réttindum yfir börnum sínum.
Við skilnað gildir að meginreglunni til helmingaskiptaregla hjúskaparréttarins sem felur í sér að hvort hjóna á tilkall til helmings eigna, en hjón geta samið sín á milli um að fjárskipti verði með öðrum hætti. Þegar einstaklingur hefur gert samning sem er óhagstæður getur reynst þrautinni þyngra að fá samningnum hnekkt á þeim grundvelli að hann hafi verið ósanngjarn. Fjölmörg fordæmi eru fyrir því að slíkir samningar eru taldir gildir, jafnvel þó að annar aðilinn beri fyrir sig andlegt ójafnvægi eða aðrar aðstæður sem voru fyrir hendi við samningagerð.
Sama er uppi á teningnum ef annað foreldri afsalar sér forsjá eða lögheimili barna sinna. Slíkar ákvarðanir eru skuldbindandi og verður forsjáin til að mynda ekki fengin aftur nema með samþykki þess foreldris sem nú fer með forsjá eða með dómi.
Það er því mikilvægt fyrir einstaklinga sem ganga í gegnum skilnað að njóta traustrar og áreiðanlegrar ráðgjafar í því ferli sem skilnaður er. Það borgar sig að flýta sér hægt og afla upplýsinga fyrirfram um þau réttaráhrif sem einstakar ákvarðanir kunna að hafa, bæði fjárhagslega og persónulega.
Þú getur bókað ráðgjöf um hjúskaparmál hér.

