Er EKKO á hreinu á þínum vinnustað?

EKKO mál

Hvað er EKKO?

EKKO er skammstöfun sem notuð er yfir einelti, kynferðislega og kynbundna áreitni og ofbeldi.

Mál sem varða EKKO á vinnustöðum eru í síauknum mæli að rata fyrir dómstóla. Slík mál reynast gjarnan þolendum, meintum gerendum og vinnuveitendum þungbær.

Það er mikilvægt að vinnuveitendur séu vel vakandi fyrir þeim skyldum sem á þeim hvíla samkvæmt vinnuverndarlöggjöfinni og reglugerðum sem settar hafa verið með stoð í þeim.

Góð þekking stjórnenda og mannauðsteymis á regluverkinu tryggir í senn öruggara vinnuumhverfi fyrir starfsfólk og minni áhættu fyrir fyrirtæki eða stofnanir af mögulegum málaferlum og eftir atvikum bótaskyldu.

Ábyrgð vinnuveitenda og réttindi starfsmanna

Reglugerð um aðgerðir gegn EKKO, nr. 1009/2015, hefur það m.a. að markmiði að koma í veg fyrir atvik. Forvarnir eru lykilatriði í því að koma í veg fyrir þau atvik sem reglugerðin fjallar um á vinnustöðum.

Í því samhengi er mikilvægt fyrir vinnuveitendur að þekkja til skyldu sinnar samkvæmt reglugerðinni um að framkvæma áhættumat. Þar ber að greina ýmsa áhættuþætti þess að EKKO geti komið upp á vinnustaðnum og er það gert út frá nánar tilgreindum atriðum sem tengjast andlegum og félagslegum þáttum í tengslum við vinnustaðinn.

Á grundvelli þessa áhættumats ber vinnuveitanda svo að útbúa áætlun um heilsuvernd, þar sem m.a. kemur fram til hvaða aðgerða skuli gripið í því skyni að koma í veg fyrir EKKO á vinnustað, hvert má koma kvörtun eða ábendingu á framfæri innan vinnustaðarins og til hvaða aðgerða ber að grípa þegar slík mál koma upp, m.a. í því skyni að koma í veg fyrir að slík hegðun endurtaki sig á vinnustaðnum..

Ef ábending eða kvörtun um EKKO berst vinnuveitanda er honum skylt að bregðast við. Aðgerðarleysi í þessum efnum hefur bakað vinnuveitendum bótaskyldu.

Meðferð mála getur verið ólík eftir eðli hvers máls, en mestu máli skiptir að málsmeðferðin sé í samræmi við áætlun vinnustaðarins og þau sem koma að vinnslu slíkra mála hjá vinnuveitanda þekki áætlun vinnustaðarins og það regluverk sem um atvikið gildir.  

Ávinningur þess að bregðast við rétt

Þegar EKKO á sér stað á vinnustað er mikilvægt, bæði fyrir þá starfsmenn sem í hlut eiga og vinnuveitandann, að áætlanir vinnuveitandans séu skýrar og viðbrögð þeirra sem koma að málinu séu fyrirfram ákveðin. Þá skiptir ekki síður máli að viðbrögðin séu í samræmi við hina fyrirfram ákveðnu áætlun. Ábyrgð vinnuveitanda á málsmeðferð er rík, en röng málsmeðferð hefur orðið til þess að dómstólar hafa talið vinnuveitendur bótaskylda.

Það er því ekki aðeins siðferðislega mikilvægt fyrir vinnuveitendur að bregðast við þessum málum, heldur er það einnig lögbundin skylda. Vinnuveitendur hafa ekki frjálsar hendur um hvernig þau bregðast við þessum aðstæðum, heldur þurfa viðbrögð þeirra að uppfylla kröfur sem gerðar eru til þeirra samkvæmt reglugerðinni.

Niðurstaða

Af framasögðu leiðir að það er mikilvægt það er fyrir fyrirtæki og stofnanir að hafa EKKO ferlana sína á hreinu og að stjórnendur viti hvernig bregðast á við. Með því að fylgja þeim kröfum sem reglugerð nr. 1009/2015 gerir til vinnuveitenda má í senn tryggja starfsmönnum öruggara starfsumhverfi og lágmarka áhættu vinnuveitandans.

Lögfræðiþjónusta Hafnarfjarðar veitir alhliða þjónustu í málum sem varða EKKO á vinnustöðum. Við bjóðum upp á sérhæfða ráðgjöf og aðstoð til stofnana, fyrirtækja og einstaklinga.

author avatar
Elísabet Pétursdóttir
Lögmaður hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar

Discover more from Lögfræðiþjónusta Hafnarfjarðar

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading