Í störfum mínum sem lögmaður hef ég í vaxandi mæli orðið vör við að Íslendingar nýti sér erfðafræðilega gagnagrunna á borð við MyHeritage, AncestryDNA og sambærileg þjónustufyrirtæki. Notkun þessara gagnagrunna hefur það í för með sér að sífellt fleiri fá upplýsingar um að skráð faðerni þeirra stenst ekki skoðun.
Í flestum tilvikum hefur faðerni barns verið skráð samkvæmt svonefndri pater est reglu, sem felur í sér að eiginmaður móður er sjálfkrafa skráður faðir barns hennar. Ef móðirin hefur ekki verið í hjónabandi hefur faðerni yfirleitt verið skráð á grundvelli viðurkenningar föður.
Í flestum tilvikum er mikið áfall að fá upplýsingar sem þessar, enda er uppruni okkar órjúfanlegur hluti af sjálfsmynd okkar. Þessar upplýsingar vekja gjarnan upp óvissu og jafnvel sorg eða reiði. Sumir einstaklingar lýsa aftur á móti létti, sérstaklega þegar niðurstöðurnar staðfesta langvarandi grun um að faðerni þeirra sé ranglega skráð.
Þegar niðurstöður þessara gagnagrunna gefa sterklega til kynna að skráð faðerni sé rangt vakna óhjákvæmilega margar spurningar. Ein þeirra er hvernig unnt sé að leiðrétta skráninguna samkvæmt íslenskum lögum.
Hvernig er rangt faðerni barns afskráð?
Í íslenskum rétti er gert ráð fyrir að unnt sé að leiðrétta skráð faðerni.
Svo unnt sé að leiðrétta faðerni barns er slíkt gert með dómsmáli til véfengingar á faðerni barns, sem er einkamál höfðað fyrir dómstólum.
Véfengingarmál getur verið höfðað af barninu sjálfu, móður þess eða skráðum föður. Ef barnið höfðar málið, jafnvel þegar það er orðið fullorðið, er málskostnaður greiddur úr ríkissjóði. Þetta er mikilvægt réttarákvæði sem tryggir að einstaklingar fái notið réttar síns um að þekkja uppruna sinn án þess að bera af því fjárhagslega byrði.
Í slíku máli úrskurðar dómari almennt að fram fari mannerfðafræðilega rannsókn. Niðurstöður þeirrar rannsóknar eru jafnan helsta sönnunargagn málsins og ræður niðurstöðu þess.
Sé niðurstaða rannsóknarinnar að skráður faðir sé ekki líffræðilegur faðir barnsins, gengur dómur þess efnis og unnt að fá faðernið afskráð í kjölfarið.



Leave a Reply