Erfðaréttur

Erfðaréttur eru okkar fag

Erfðaréttur er meðal helstu viðfangsefna okkar hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar. Erfðaréttur er fjölbreytt réttarsvið sem er okkur vel kunnugt. Við kappkostum við að veita öllum sem til okkar leyta góða þjónustu á öllum stigum málsins.

Erfðaskrá

Á ári hverju leitar fjöldi fólks til okkar til að fá aðstoð við gerð erfðaskrár. Hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar er áhersla lögð á að allar þær erfðaskrár sem við útbúum endurspegli vilja þess sem hana gerir. Það getur skipt sköpum að njóta traustrar ráðgjafar við gerð erfðaskrár þar sem efni skjalsins, form þess og vottun þurfa að uppfylla kröfur erfðalaga. Ef á þessi atriði skortir verða þau ekki leiðrétt eftir á.

Þjónustan okkar felur í sér fund með lögmanni þar sem farið er yfir vilja þess sem gerir erfðaskrá, mögulegar útfærslur og veitt fræðsla um erfðarétt. Í kjölfarið útbýr lögmaður okkar erfðaskrá. Að endingu fara lögmaður og viðskiptavinur í sameiningu yfir erfðaskránna til að ganga úr skugga um að erfðaskráin endurspegli vilja arfleifanda.

Hafðu samband til að bóka ráðgjöf um gerð erfðaskrár.

Lesa meira um erfðaskrá→

Seta í óskiptu búi

Þegar einstaklingur missir maka sinn reynist oft mikilvægt að fá heimild til setu í óskiptu búi. Hvort sem markmiðið er að tryggja fjárhagslegt öryggi um stundarsakir eða fram til æviloka, er mikilvægt að slík heimild fáist. Það fer eftir aðstæðum hverju sinni hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að fá heimild til setu í óskiptu búi.

Við veitum ráðgjöf til þeirra sem óska eftir setu í óskiptu búi og aðstoðum við að sækja um leyfið, sé þess óskað.

Hafðu samband til að bóka tíma um óskipt bú.

Fyrirframgreiddur arfur

Oft vilja foreldrar, ömmur eða afar styðja afkomendur sína fjárhagslega meðan þau eru enn á lífi. Í slíkum tilvikum getur verið hagkvæmt að færa eignir á milli kynslóða í formi fyrirframgreidds arfs. Ástæðan er sú að erfðafjárskattur er yfirleitt lægri en tekjuskattur sem annars gæti fallið til vegna gjafagerninga. Ráðgjöf lögmanns við þessa aðstæður getur sparað fjármuni og einfaldað málin til framtíðar. Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar veitum slíka ráðgjöf.

Hafðu samband til að fá ráðgjöf um fyrirframgreiddan arf.

Lesa meira um fyrirframgreiddan arf→

Skipti á dánarbúi – Einkaskipti og opinber skipti

Við andlát einstaklings stofnast dánarbú sem þarf að skipta á lögformlegan hátt. Skipti geta farið fram með einkaskiptum eða opinberum skiptum.

Ef erfingjar velja einkaskipti þarf að huga að mörgum þáttum, allt frá því að sækja um leyfi, útbúa erfðafjárskýrslu og einkaskiptagerð og til uppgjörs skulda búsins og úthlutunar arfs.

Við aðstoðum einstaklinga við að skipta búi í einkaskiptum og komum fram fyrir hönd erfingja sem hafa bú í opinberum skiptum.

Hafðu samband og fáðu faglega aðstoð við skipti á dánarbúi.

Erfðaréttur – Við erum til staðar

Við veitum faglega og persónulega ráðgjöf í flestum málum sem varða erfðamál. Hafir þú spurningar varðandi erfðamál er þér velkomið að heyra í okkur.

Lögmaður í erfðamálum

Erfðaréttur er okkar fag. Elísabet Pétursdóttir getur aðstoðað við að gera erfðaskrá, við skipti á dánarbúum o.fl.
Elísabet Péturdóttir lögmaður í erfðamálum

Hafa samband við Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar vegna erfðamála.
📧 loghaf@loghaf.is

☎️ 5654550 

📍 Dalshraun 5, 220 Hafnarfirði

← Back

Your message has been sent