Lögmaður þegar skilnaður verður
Skilnaður er flókið og eftir atvikum langt ferli, sem reynir á flesta sem ganga á það reyna. Á slíkum tímamótum er mikilvægt að hafa traustan lögmann við hlið sér, sem getur hjálpað við að tryggja hagsmuni bæði fyrir einstaklinginn og fjölskylduna, og jafnframt flýtt ferlinu án þess að fórna mikilvægustu hagsmunum.
Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar bjóðum upp á sérhæfða lögfræðiaðstoð í skilnaðarmálum. Við tökum að okkur málsmeðferð frá því að skilnaður er ákveðinn og fylgjum málinu eftir allt þar til allr er við kemur skilnaðinum er frágengið.
Aðstoð okkar getur varðað gerð fjárskiptasamnings og mál er lúta að forsjá barna, lögheimili og umgengni eftir skilnað. Við hjálpum einnig við að gera kröfu um opinber skipti ef samningar um fjárskipti ná ekki árangri.
Fjárskiptasamningur
Fjárskiptasamningur er mikilvægur hluti af skilnaðinum eða eftir atvikum sambúðarslitunum. Með honum eru ákveðið um hvernig eignum og skuldum verður skipt á milli aðila eftir skilnað eða sambúðarslit. Samningurinn er samkomulag milli aðila um fjárhagslega hagsmuni.
Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar gætum réttinda viðskiptavina okkar og aðstoðum þá við gerð fjárskiptasamnings.
Lesa meira um fjárskiptasamninga→
Beiðni um opinber skipti
Ef samningaviðræður vegna fjárskipta hafa ekki borið árangur, er hægt að óska eftir opinberum skiptum hjá dómstólum. Við veitum aðstoð við að útbúa slíka beiðni og koma henni í réttan farveg.
Forsjá, lögheimili og umgengni barna
Eftir skilnað verður að taka ákvarðanir um forsjá, lögheimili og umgengni barna. Þetta eru mikilvægar ákvarðanir sem hafa áhrif á daglegt líf og velferð barnsins og foreldranna.
Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar veitum ráðgjöf og aðra aðstoð til foreldra sem standa frammi fyrir slíkum ákvörðunum, með það að markmiði að finna lausnir sem tryggi bestu hagsmuni barnsins og foreldranna.
Lesa meira um forsjá og lögheimili→
Önnur ráðgjöf þegar skilnaður verður – Við erum til staðar
Við hjá Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar bjóðum upp á sérhæfða og persónulega ráðgjöf fyrir þau sem er að fara í gegnum skilnað.
Lögmaður í skilnaðarmálum:

Hafa samband við Lögfræðiþjónustu Hafnarfjarðar vegna skilnaðarmála:
📧 loghaf@loghaf.is | ☎️ 5654550 | 📍 Dalshraun 5, 220 Hafnarfirði
Nánari upplýsingar um skilnaðarferlið má finna á vef Sýslumannsins.
