Lögmaður í þína þágu
Lögfræðiþjónusta Hafnarfjarðar er lögmannsstofa þar sem lögð er áhersla á að veita faglega og persónulega lögfræðiþjónustu. Viðskiptavinir okkar eru einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök. Þjónustan okkar byggir ætíð á fagmennsku og lausnamiðaðri nálgun, þar sem lögmaður okkar vinnur að því að gæta hagsmuna þinna á skjótan og öruggan hátt.
Lögfræðiþjónusta Hafnarfjarðar býður upp á alhliða lögfræðiþjónustu en á stofunni er lögð sérstök áhersla á sifja- og erfðamál. Þannig snertir stór hluti okkar verkefna mál er varða erfðamál, hjónaskilnaði, faðernismál o.fl. Þá störfum við mikið á sviði stjórnsýsluréttar og vinnuréttar.
Þurfir þú aðstoð eða ráðgjöf vegna fjölskyldumála, vinnuréttarmála, stjórnsýslumála erum við rétti aðilinn fyrir þig,
Starfsvið okkar
Lögfræðiþjónusta Hafnarfjarðar veitir þjónustu fjölbreyttum réttarsviðum. Meðal starfssviða okkar eru:
- Almenn lögfræðiráðgjöf – Fyrir einstaklinga og fyrirtæki vegna hvers kyns lögfræðilegra álitaefna.
- Erfðamál – Aðstoð við gerð erfðaskrár, skipti dánarbús, lausn ágreiningsmála milli erfingja, fyrirframgreiðslu arfs o.fl..
- Fjölskylduréttur – Mál er varða forsjá barna, lögheimili þeirra og umgengni við það foreldri sem það býr ekki hjá, sem og önnur mál á sviði fjölskylduréttar.
- Faðernis- og véfengingarmál er varða faðerni.
- Samningar og skjöl – Gerð og yfirferð skjala, svo sem kaupsamninga, umboða og erfðaskráa.
- Stjórnsýslumál – Samskipti við opinbera aðila og aðstoð við kærur og ráðgjöf vegna stjórnsýsluákvarðanana.
- Málsvörn og hagsmunagæsla – Fyrir dómstólum, hjá lögreglu og stjórnvöldum.
- Verjendastörf og réttargæsla – Á öllum stigum máls.
- Vinnuréttur – Ráðgjöf til launþega og atvinnurekenda, þar á meðal við starfslok, ráðningarsamninga og ágreining.
Lögmaður í Hafnarfirði – hvar finnur þú okkur?
📍 Dalshraun 5, Hafnarfjörður
📞 565 4550
📧 loghaf@loghaf.is
Fjarfundir
Ef þú átt erfitt með að komast til okkar bjóðum einnig upp á fjarþjónustu í gegnum fjarfundabúnað, sé þess óskað. Hvort sem þú býrð í Hafnarfirði eða annars staðar á landinu, getum við veitt þér faglega lögfræðiaðstoð hvar og hvenær sem er.

Hafa samband
Fylltu inn formið hér fyrir neðan og við svörum fyrirspurn þinni eins fljótt og auðið er.
